fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Ég hef af því örlitlar áhyggjur að málflutningur í tengslum við löggæslumál verði frasakenndur. Mér fannst svolítið á máli hv. þingmanns eins og hann væri á sjálfstýringu þegar hann sagði: Þrátt fyrir niðurskurð undanfarinna ára. Ég er búin að segja það nokkuð oft hér í dag og hef brugðið upp súluriti og bent á súlurit á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins, dmr.is, og þreytist ekki á að segja það enn og aftur að ekki hefur verið skorið niður til lögreglunnar frá því að Sjálfstæðisflokkurinn tók við stjórn þessara mála árið 2013. Það hefur bara ekki verið niðurskurður. Fjárheimildir hafa ekki verið auknar eins mikið í háa herrans tíð. Við kunnum síðan að hafa á því hvort sína skoðunina hvort nóg sé að gert. En þetta er staðan. Allt tal um niðurskurð síðustu ára er ósanngjarnt og ekki til þess fallið að varpa réttu ljósi á stöðu lögreglunnar.
Ég vil miklu frekar ræða hvað við getum betur gert, hvernig við getum forgangsraðað betur þessum peningum, fengið meira út hverri krónu. Ef menn ætla ekki að horfast í augu við þá aukningu sem verið hefur nær sú umræða aldrei upp á vitrænt plan. Ég vildi árétta það sérstaklega.
Það er rétt að löggæsluáætlunin hefur beðið lengi. Ég er reyndar fegin því að hún hafi beðið lengi vegna þess að það hefur gefið lögreglustjórum um allt land frekara tækifæri á að koma með ábendingar. Ég hef brugðist við þeim ábendingum, verið þeim sammála og hef breytt löggæsluáætluninni til samræmis við ábendingar lögreglustjóra. Þegar ég mun kynna hana nú í haust held ég að hún verði plagg sem leitt geti til skilvirkrar mælingar á árangri löggæslunnar og þeim árangri og væntingum sem við höfum til hverrar krónu sem við setjum í löggæsluna.