fjárlög 2019.
Herra forseti. Það eru nokkur atriði sem mig langar að nefna við hæstv. ráðherra. Það fyrsta þeirra er Schengen-samstarfið en það gleður mig mjög að sjá að verulegir fjármunir eru settir í það mikilvæga samstarf sem er einmitt mjög mikilvægur hlekkur í því að tryggja öryggi borgara landsins og annarra borgara sem hér eru á ferðinni.
Þess vegna langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé ekki óhætt að túlka þá áherslu að sinna Schengen vel sé til marks um ætlun ríkisstjórnarinnar og hæstv. ráðherra hennar að styðja við og sinna mjög vel þessari stoð í evrópskri samvinnu. Það er nú einu sinni þannig að mjög mikilvægt er að talað sé ákaflega skýrt í þessum efnum, ekki síst á þessum tímum þar sem einangrunarhyggja og aflokunarstefna virðist eiga mjög upp á pallborðið víða og sumu af því skolar á land á Íslandsstrendur.
Mig langar því að spyrja ráðherrann mjög ákveðið og beint um það hvort ekki megi treysta því að hæstv. dómsmálaráðherra og ríkisstjórnin muni standa vörð um Schengen-samstarfið.