fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina um þetta mikilvæga samstarf, ég er sammála honum um það, sem við eigum í á vettvangi Schengen. Það er verst að svo virðist vera sem hv. þingmaður og sú sem hér stendur hafi ein áhuga á þessu máli því að salurinn er orðinn tómur, en það er ágætt, þá getum við átt einlægt og innilegt samtal um þetta.
Það er mín afstaða og ríkisstjórnarinnar að vera okkar í Schengen sé algjör forsenda þess að við getum tryggt hér löggæslu og öryggismál eins og gerð er krafa um í dag. Ekki bara með samstarfi varðandi landamæragæslu heldur með samstarfi á vettvangi löggæslumála almennt og sem hefur reyndar líka leitt til víðtæks samstarfs á vettvangi jafnvel ákærumála líka.
Schengen-samstarfið hefur auðvitað tekið stakkaskiptum undanfarin ár í ljósi þeirra áskorana sem öll ríkin í Evrópu hafa staðið frammi fyrir í öryggismálum vegna fordæmalausra fólksflutninga til Evrópu. Ekki bara flóttamanna eða hælisleitenda, heldur líka efnahagslegra ástæðna, fólks sem er að flýja efnahagslegar aðstæður utan við Evrópu, mögulega innan Evrópu líka.
Menn ræða stundum svolítið og slengja því fram, vonandi í hálfkæringi, að við hefðum fulla burði til að verja landamæri okkar þótt við værum ekki í Schengen og vissulega væri það að einhverju leyti rétt, að við gætum gert það. Það breytir því hins vegar ekki að við hefðum staðið frammi fyrir sömu áskorunum og ógnum og við gerum í dag, og hefðum haft færri tækifæri til að bregðast við þeim með jafn skilvirkum hætti og við höfum getað gert á vettvangi Schengen. Ég mun því í öllu falli standa vörð um Schengen-samstarfið á meðan það er eins og það er, en auðvitað tekur það breytingum og við höfum náttúrlega málfrelsi á þeim vettvangi.