149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[19:06]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér fjárlagafrumvarp fyrir árið 2019. Það er með þetta fjárlagafrumvarp eins og örugglega öll önnur fjárlagafrumvörp sem samþykkt hafa verið eða komið til umræðu hér á Alþingi Íslendinga að það er ekki fullkomið, en það er hins vegar margt jákvætt í því. Vissulega eru þættir þar sem við þurfum að gera betur og í þeim málaflokki sem sá sem hér stendur mælir fyrir er alltaf verk að vinna og það skal enginn efast um það. Ég ætla að fara í fljótu bragði yfir nokkur atriði sem þó eru jákvæð í frumvarpinu.

Við erum með þessu frumvarpi að bæta kjör öryrkja. Við erum að hækka greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi. Við erum að auka stuðning við börn og barnafjölskyldur. Það er áhersla á uppbyggingu félagslegs húsnæðis og það er aukinn stuðningur við atvinnuleitendur og þessar tölur sjást allar í frumvarpinu.

Heildarútgjöld til málaflokksins sem heyrir undir félags- og jafnréttismál eykst að raunvirði um 8,5% á milli ára, gangi þetta fjárlagafrumvarp eftir. Útgjöld til félags- og jafnréttismála aukast um 15,6 milljarða kr. á næsta ári sem og það er að frátöldum launa- og verðlagsbótum en heildaraukningin, ef við bætum við launa- og verðlagsbótum, er 21,4 milljarðar, það er vegna þess að verðlagsbætur eru um 5,9 milljarðar í frumvarpinu. Það er auðvitað gríðarlega mikil aukning á milli ára og ég er mjög ánægður með að við skulum vera að auka fjárveitingar til þessa málaflokks milli ára.

Helstu atriði sem þarna eru undir og er verið að hækka eru m.a. 4 milljarða kr. aukin fjárveiting til að bæta kjör öryrkja og til þess að stíga fyrstu skref, og ég ítreka fyrstu skref, í endurbótum á almannatryggingakerfinu. Það eru 4 milljarðar eins og ég sagði en jafnframt því eru 3,6 milljarðar kr. sem eru til komnir til þess að mæta fjölgun aldraðra og öryrkja.

Það er líka verið að auka fjárhagslegan stuðning við börn og barnafjölskyldur og þar munar mest um að verið er að hækka greiðslur í fæðingarorlofi úr 520.000 kr. í 600.000 kr. á næsta ári. Heildarkostnaður vegna þessa nemur 1,8 milljörðum. Þetta var eitt af stefnumálum ríkisstjórnarinnar, bæði að hækka greiðslur í fæðingarorlofi og lengja fæðingarorlof og þarna erum við búin að stíga annað skrefið en enn þá er eftir að stíga skrefið varðandi lenginguna. Auk þessa er gert ráð fyrir að kostnaður fæðingarorlofs vegna hækkunar á mótframlagi í lífeyrissjóði fari úr 8% í 11,5% og það kosti um 400 milljónir á næsta ári og gert er ráð fyrir því.

Jafnframt þessu er gert ráð fyrir í frumvarpinu 200 millj. kr. sem eru ný fjárveiting til þess að styrkja stöðu barna og barnafjölskyldna. Auk þess er fleira sem snýr að börnum og ungmennum vegna þess að á næsta ári er gert ráð fyrir auknu framlagi vegna uppbyggingar á sérstökum búsetuúrræðum fyrir börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir, þar er verið að auka fjárveitingar um 150 millj. kr. á næsta ári til þeirrar uppbyggingar, auk þess sem 80 millj. kr. er varið til nýs stuðningsheimilis með eftirfylgd fyrir unglinga í fikniefnavanda.

Það er líka svo að samkvæmt stefnu ríkisstjórnarinnar er verið að auka fjárframlög til móttöku flóttafólks. Verið er að auka endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fólk sem hefur verið veitt alþjóðleg vernd og sú aukning nemur á næsta ári í heildina 400 millj. kr. samkvæmt fjárlagafrumvarpinu.

Það er líka svo að í framhaldi af ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hækka atvinnuleysisbætur í 90% verða framlög í Atvinnuleysistryggingasjóð aukin um 2,3 milljarða kr. á næsta ári og enn fremur verða framlög til Ábyrgðasjóðs launa aukin um 200 milljónir í samræmi við yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga, sem undirrituð var í lok febrúar á þessu ári. En þar sem spár gera því miður ráð fyrir að atvinnuleysi aukist lítillega á næsta ári er líka gert ráð fyrir auknum fjárframlögum sem því nemur eða um 1,7 milljörðum kr. í fjárlagafrumvarpinu.

Síðan er aukning til húsnæðismála en þar er verið að auka í stofnframlög um 800 millj. kr., það er til uppbyggingar á félagslegu húsnæði með stofnframlögum þar sem ríkið hefur átt samstarf við sveitarfélögin, við verkalýðshreyfinguna og við stúdentahreyfingarnar um byggingu félagslegra íbúða.

Eins og ég sagði áðan eru þetta talsverðar aukningar en betur má ef duga skal og það er gríðarlega mikilvægt líka að við hugum að ýmsum kerfisbreytingum í þessum málaflokki og það er í vinnslu einnig. Ég þykist vita að ég verði hugsanlega spurður út í eitthvað af því hér á eftir þannig að við látum það bíða.