149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[19:21]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Mig langar að ræða við hæstv. ráðherra um tvö atriði þar sem ríkisstjórn sú sem hann situr í og hann sjálfur skila auðu. Það eru annars vegar málefni aldraðra og hins vegar málefni öryrkja.

Greiðslur til aldraðra hækka samkvæmt þessu frumvarpi rétt því sem nemur fjölgun í aldurshópum sem taka ellilaun. En þarna er ekki að sjá neina aukningu, þarna er ekki að sjá neina hækkun og þarna er heldur ekki að sjá, sem ég átti svo sem ekki von á, viðbrögð við tillögu sem við Miðflokksmenn fluttum við fjárlagaumræðuna í fyrra, um að öldruðum yrði gert kleift að vinna sér inn tekjur án þess að þær skertu lífeyri. Það hefði verið tiltölulega sársaukalítil aðgerð fyrir ríkissjóð en það hefði skipt nokkur þúsund aldraða töluverðu máli. Það hefði aukið lífsgæði þeirra. Það hefði aukið virkni þeirra. Það hefði komið í veg fyrir einangrun og einsemd. En þessi tillaga okkar Miðflokksmanna var felld að viðhöfðu nafnakalli. Ríkisstjórnarflokkarnir felldu allir og Samfylkingin sat hjá.

Ég sé að þessi tillaga er ekki inni í frumvarpinu og hvet því hæstv. ráðherra til þess að styðja tillögu sem mun koma fram aftur af hálfu Miðflokksins um þetta mál og á sömu forsendum. Ég hvet hann til dáða í því efni vegna þess þetta er kannski einfaldasta leiðin til þess að gera vel við stóran hluta aldraðra og auka lífsgæði þeirra og hamingju.