fjárlög 2019.
Frú forseti. Nú erum við að tala saman. Það er nefnilega þannig að við höfum sennilega í a.m.k. átta ár, ef ekki lengur, verið að tala um það með hvaða hætti við getum breytt húsnæðiskerfinu, með hvaða hætti við getum breytt húsnæðisstuðningi, en við höfum stigið alveg ógurlega lítil skref í rauninni. Það er rétt, almenna íbúðakerfið sem þáverandi félags- og jafnréttisráðherra, Eygló Harðardóttir, kom af stað var mikilvægt skref, en betur má ef duga skal.
Hæstv. ráðherra nefndi m.a. þátt sveitarfélaganna. Ég held að samtalið sem þarf að fara fram í þessum málum sé einmitt á milli sveitarfélaganna, aðila vinnumarkaðarins og ráðuneytisins. Þarna eru að mínu viti lykilaðilarnir, lífeyrissjóðirnir mega gjarnan vera með, en þeir eiga ekki endilega að vera í ökusætinu í þessum efnum. Mér finnst að það sé miklu nær að þessir aðilar, þ.e. sveitarfélögin sem bera í rauninni í grunninn ábyrgð á því að allir hafi öruggt þak yfir höfuðið, verði að vera þarna, ráðuneytið náttúrlega sem ábyrgðaraðili málaflokksins og sambandið með sveitarfélögunum. Þarna erum við í rauninni að tala um það að sveitarfélögin geta það alveg og hafa alveg tækin, eins og hæstv. ráðherra kom hérna inn á, til þess að halda niðri íbúðaverði, a.m.k. að einhverju leyti. Þau geta lagt fram framlög til að mynda í formi lóða með sérstökum aðgerðum. Það er mjög mikilvægt að þetta samtal verði tekið á einhverjum vitrænum grunni þannig að menn, eins og ráðherra orðaði það svo ágætlega áðan, komist einhvern veginn út fyrir kassann (Forseti hringir.) og fari að tala á þeim nótum að þetta snúist um öruggt húsnæði. (Forseti hringir.) Þetta snýst ekki um eignir einstaklinga.