149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[20:01]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Ingu Sæland að við eigum að hugsa út fyrir boxið. Það erum við að gera með þeim breytingum og þeirri nálgun sem hefur verið varðandi starfsgetumat síðasta ár. Við ætlum okkur að innleiða þetta nýja starfsgetumat en þó með talsvert breyttri hugsun og breyttri nálgun í því hvernig við aðstoðum fólk við það að fara út á vinnumarkaðinn. Við erum með 4 milljarða í aukningu á milli ára. Það er ætlunin að nýta þá fjármuni þannig að þeir nýtist sem best í að hvetja fólk til þess að fara út á vinnumarkaðinn. Þar horfum við auðvitað til krónu á móti krónu skerðinganna. Ég hef þegar rætt það við bæði Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp hvernig við stígum næstu skref í því.

Hins vegar er gríðarlega mikilvægt ef við horfum á þróunina og þá aukningu sem gert er ráð fyrir að verði á næstu árum í hópi örorkuþega á Íslandi — það er líka að gerast í Svíþjóð af því að hv. þingmaður minnist á það — þá þurfum við líka róttækar breytingar í því hvernig við nálgumst það að byggja upp atvinnu fyrir þennan hóp, hvernig atvinnulífið kemur að því. Núna í Svíþjóð eru stjórnvöld að huga að því að gera þríhliða kjarasamninga á milli ríkisvaldsins, atvinnurekenda og síðan samtaka örorkulífeyrisþega, vegna þess að atvinnulífið er ekki að koma inn. Jafnvel þótt fólki sé gefið færi á því að fara út á vinnumarkaðinn er atvinnulífið ekki tilbúið til þess að taka við því. Það er eitt af því sem þarf að skoða í þessu sambandi líka, hvernig við nálgumst það.

Þess vegna er svo mikilvægt að við klárum þessa vinnu með starfsgetumatið. Það er svo mikilvægt að við komum með löggjöfina hérna inn, klárum það og hefjum undirbúningstímabilið, hvernig við aðstoðum fólk við að taka þátt í samfélaginu og fara út á vinnumarkaðinn, vegna þess að öll erum við ólík. Við viljum að við getum verið ólík og við viljum að við getum tekið þátt á vinnumarkaðnum.

Við verðum að taka þessar breytingar samhliða. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður er sammála um það, en við erum sammála um að það þarf síðan auknar fjárveitingar (Forseti hringir.) inn í kerfið. Ég ætla ekki að neita því, en það eru samt 4 milljarðar núna. Það er skref áfram, en við þurfum (Forseti hringir.) að auka fjárveitingar í framhaldinu.