fjárlög 2019.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Ég er dálítið hugsi eftir málflutning hans því að mér heyrist hann vera að lofa hér talsvert miklu upp í ermina á sér, miðað við þær fjárveitingar sem lagðar eru til, bæði í þessum fjárlögum og í fjármálaáætlun á næstu árum.
Byrjum á örorkulífeyriskerfinu, af því að frumvarp er boðað eftir röskan mánuð. Það er alveg ljóst að breytingar á starfsgetumati, afnám krónu fyrir krónu skerðingar, auk þeirrar fjölgunar sem er að eiga sér stað í kerfinu, mun kosta talsvert meira en 4 milljarða á ársgrundvelli. Ráðherra segir að innleiða eigi þetta í þrepum en í fjármálaáætlun held ég að gert sé ráð fyrir 1–1,5 milljörðum í viðbót í málaflokkinn árið 2020.
Ég spyr því og vil fá skýrt svar: Hvert er kostnaðarmat ráðherra á þeim aðgerðum sem hann mun leggja til? Það hlýtur að liggja fyrir ef frumvarpið er í fæðingu. Og hvernig á þá að fjármagna þetta ef við samþykktum í vor fjármálaáætlun sem gerir á engan hátt ráð fyrir þessu?
Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og í þinginu er þverpólitísk samstaða, held ég, um að afnema krónu fyrir krónu skerðinguna. Sú fjölgun öryrkja sem ráðherra vísar til er stórt vandamál en stór hluti þess liggur auðvitað í þeim neikvæðu hvötum til atvinnuþátttöku sem eru í núverandi kerfi. Það er því gríðarlega mikilvægt að þarna takist vel til.
Ég horfi líka til þess sama varðandi þau útgjaldaloforð sem hér eru gefin um fæðingarorlofskerfið. Það er alveg ljóst að í fjármálaáætlun og í umræðum um hana var ekki gert ráð fyrir lengingu fæðingarorlofs. Það er ekki fjárveiting til lengingar fæðingarorlofs en hér talar hæstv. ráðherra aftur um lengingu þess. Ég sé ekki að þess sjái stað því að gert er ráð fyrir u.þ.b. milljarði til viðbótar í fæðingarorlof á árinu 2020. Það er alveg ljóst að það eitt og sér gerir ekkert í lengingu þess sem myndi væntanlega kosta hið minnsta 4 til 5 milljarða miðað við núverandi útgjöld.
Hvar er fjármögnunin á þeim loforðum sem ráðherra er að ýta hér undir?