fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Það liggur auðvitað ljóst fyrir og kemur skýrt fram í lögum um opinber fjármál hvernig þessi mál eru unnin. Fjármálaáætlun er endurskoðuð árlega líkt og fjárlög og það liggur líka ljóst fyrir að á hverjum tíma eru stjórnvöld að vinna að stefnumálum, hvort sem er innan félagsmálaráðuneytisins eða heilbrigðisráðuneytisins eða samgönguráðuneytisins. Þegar stefnumótun er í gangi og þegar kerfisbreytingar verða eru í framhaldinu áætlanir ríkisins sjálfkrafa endurskoðaðar í sambandi við það.
Það verður auðvitað gert í framhaldinu, það liggur ljóst fyrir og ég get hjálpað hv. þingmanni, vegna þess að hann nefndi það ekki áðan í ræðu sinni, að bæta við þessa upptalningu því að það þarf líka að styðja úrræði á vinnumarkaði ef við ætlum að innleiða starfsgetumat, ýmis úrræði hjá Vinnumálastofnun. Það er ljóst að við erum að fara í heljarinnar kerfisbreytingu og með kerfisbreytingum eins og þessum skoðum við auðvitað allar áætlanir ríkissjóðs og hvaða áhrif þetta hefur á aðra þætti. Skárra væri það nú. Þannig virkar fjárlagakerfið.
Varðandi hækkun fæðingarorlofs og lengingu fæðingarorlofs er það skýrt í stefnu ríkisstjórnarinnar að það stendur til á kjörtímabilinu en ég vil líka minna hv. þingmann á að þessi ríkisstjórn hefur ekki enn starfað í eitt ár. Hún á enn eftir þrjú ár af þessu kjörtímabili. Það þýðir þrenn fjárlög, endurskoðun á fjármálaáætlun þrisvar sinnum og ég fagna því auðvitað að ég sá glitta í það hjá hv. þingmanni áðan að hann fagnaði því að það væri aukning til málaflokka eða þyrfti aukningu til málaflokka eins og örorkulífeyrisþega, eins og í aðra málaflokka. Það er auðvitað ákveðin stefnubreyting frá þeim upphrópunum sem hann var með í þingsal fyrir ekki nema tveimur dögum síðan, þegar hann var að gagnrýna það hvernig ríkisútgjöldin væru að aukast til félagsmála. Þau (Forseti hringir.) aukast um 8–9% á þessu ári að raungildi og það er fagnaðarefni og það er gott að hv. þingmaður (Forseti hringir.) sem einu sinni var félagsmálaráðherra sé kominn í þann hóp sem fagnar því en gagnrýnir það ekki eins og hann gerði fyrir tveimur dögum.