149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[20:25]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innleggið og fyrir að tala fallega um nýja aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem er náttúrlega sameiginlegt verkefni okkar allra. Ég fagna því að heyra orð þingmannsins.

Ef við berum aðeins saman fjármagnið, af því að hv. þingmaður kom inn á það, hafa á síðustu þremur árum verið um 750 millj. kr. í sérstakri sóknaráætlun í loftslagsmálum sem lýkur núna í lok þessa árs, meðan við erum að tala um 6,8 milljarða á næstu fimm árum. Það er því um umtalsverða aukningu að ræða sem ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með að sjá.

En spurning hv. þingmanns sneri að losun frá einkabílum. Jú, ég hef vissulega áhyggjur af því, ég hef nú áhyggjur af ýmsu en þetta er einmitt eitt af því. Það þarf að leggja aukna áherslu á almenningssamgöngur, að gera okkur betur kleift að nýta okkur þær, hvort sem það er að fara á reiðhjólum eða ganga eða taka strætó, en það þarf líka að gera almenningssamgöngurnar sem eru knúnar jarðefnaeldsneyti umhverfisvænni. Það eru tillögur frá starfshópi fjármálaráðherra um að ráðast í ívilnanir vegna kaupa og innflutnings á slíkum bifreiðum sem eru þá þessir stærri vagnar. Ég tek undir það með hv. þingmanni að þetta er mjög mikilvægt atriði, enda gengur líka stór hluti áætlunarinnar út á það að breyta einkabílnum í annars konar bíla, með tækni, með rafvæðingu samgangna, þannig að þeir sem nota einkabílinn, sem mjög margir gera, hafi þá tækifæri til þess að skipta honum út fyrir umhverfisvænni bifreiðar.