149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[20:29]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að meginverkefnið er að draga úr losun. Ég sé það akkúrat þannig fyrir mér að það er stóra verkefnið, að draga úr losuninni eins mikið og við mögulega getum, eins og tæknin leyfir, má kannski segja. Þegar því er lokið þurfum við með einhverjum hætti að halda áfram að draga úr því umframmagni koltvísýrings sem er í andrúmsloftinu og landgræðsla og skógrækt er mjög skilvirkur máti til þess að gera það. Sú áhersla sem lögð er á þann þátt í aðgerðaáætluninni snýr náttúrlega ekki síst að þeim markmiðum um að ná kolefnishlutleysi árið 2040. Það að byrja strax er mikilvægt vegna þess hvernig kúrfan um bindingu er, á fyrstu árunum er verið að binda lítið, svo verður það meira og meira eftir því sem skógurinn eða landið safnar meira af kolefni, bæði í jarðveg og í gróðurinn sjálfan.

Svo er það náttúrlega endurheimt votlendisins sem felur í sér að moka ofan í skurði sem er kannski eins og að setja tappa í baðkar, baðkarið lekur og við erum að missa losun út, en með því að moka ofan í skurðina setjum við tappann í og komum í veg fyrir að um eins mikla losun sé að ræða.

Þegar við tölum um kolefnisbindingu er yfirleitt endurheimt votlendis sett þar undir þó að það sé ekki kannski alveg rétt að gera það akkúrat þannig. En þar er líka til mjög mikils að vinna þegar við erum að hugsa um loftslagið í heild sinni að takast á við þau mál.