fjárlög 2019.
Hæstv. forseti. Það er rétt að nýlega kom út ný spá raforkuspárnefndar sem nær til ársins 2050. Varðandi raforkuþörfina á næstu 30 árum er þar talað um að það gæti þurft að bæta við um 464 megavöttum. Þegar við svörum þeirri spurningu hvernig við getum mætt þeirri þörf er í fyrsta lagi ef við lítum til núverandi nýtingarflokks rammaáætlunar, sem samþykktur var á Alþingi árið 2013, í honum a.m.k. tvöföld sú raforkuþörf. Þó að svæði sé í orkunýtingarflokki þýðir það ekki endilega að ráðist verði í viðkomandi virkjun en það gefur okkur samt ákveðna vísbendingu um það magn sem hér er um að ræða.
Ég vil líka benda á að núna í sumar var opnuð og sett í gang Búrfellsvirkjun II sem er um 100 megavött, sem er nærri því fjórðungur af því sem þarna er nefnt, til að gefa dæmi um stærðargráðu. Við megum heldur ekki gleyma því að við erum að horfa til næstu 30 ára. Það geta orðið miklar tækniframfarir á þeim tíma og það geta komið inn kostir til orkunýtingar sem við treystum jafnvel ekki eins mikið á í dag. Svo getur vel verið að einhvers staðar losni um orku á næstu 30 árum án þess að við vitum nákvæmlega um það í dag.
Ég hef ekkert ofboðslega miklar áhyggjur af orkuskiptum í samgöngum þegar að því kemur. Þegar við tölum um rafbílavæðinguna eru það smánotendur sem koma smátt og smátt inn í kerfið, en vissulega þarf að hafa spá orkuspárnefndar til hliðsjónar inn í framtíðina.