149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[20:50]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla að gerast aðeins smámunasamur og í stærra samhengi líka. Hér er frétt frá því fyrir tæpu ári: Glæný fiskiskip nota svartolíu sem er hagkvæmasta, ódýrasta olían peningalega séð en alls ekki umhverfislega séð. Ef ætlunin er að draga úr losun kolefnis, af hverju erum við ekki fastmiðaðri á þetta vandamál frekar en kannski fólksbílinn án þess ég fari út í baráttu um einkabílinn eða eitthvað slíkt? Til að vera smámunasamur þá er sagt í fjárlagafrumvarpinu að hækkun á kolefnisgjaldinu leiði til u.þ.b. 0,05% hækkunar á vísitölu neysluverðs. Það hljómar ekkert rosalega mikið, 1 milljarður á lán heimilanna, 15.000 kr. á 30 millj. kr. lán á ári, en það er einhver peningur.

Það sem meira er er að hækkunin hefur líka áhrif á þá sem nota ekki ökutæki, á þá sem t.d. hafa tamið sér bíllausan lífsstíl. Það er af því að við erum í þessu æðislega verðbólguhagkerfi, sem er svo gaman eða þannig. Við erum að taka í burt afslátt af bílaleigubílum en það leiðir væntanlega til þess að bílaleigur fara meira í eldri bíla upp á hagkvæmnina að gera, nýrri bílar verða dýrari. Ég er pínu smámunasamur í þessu en þá erum við í raun að ýta þeim í áttina að meira mengandi bílum, kostnaðarlega séð.

Ég spyr hvort ekki væri betra, jafnara eða árangursríkara að fara bara beint í meiri afslætti af rafmagnsbílunum til að það sé í boði fyrir það fólk sem er að nota kolefni núna. Við viljum fá kolefnið út án þess að hafa endilega áhrif á þá sem lifa bíllausum lífsstíl.