fjárlög 2019.
Frú forseti. Eins og mönnum er kannski ljóst áttaði ég mig ekki á því að ég væri á mælendaskrá en ég fagna því að fá að koma hingað upp. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra fyrir framlag hans í því að bjarga þessu landi og vernda það fallega, dýrmæta og einstaka land sem við eigum.
Ég hef eiginlega ekki öllu meira um það að segja. Ég fagna fréttum dagsins um að tillögur að friðlýsingu vatnasvæða Hólmsár hafa verið sendar út til umsagnar en svæðin þrjú eru öll í verndarflokki rammaáætlunar sem samþykkt var 2013. Ég þakka fyrir það.