fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Mig langar aðeins að skipta um gír en áður en ég geri það vil ég eiginlega biðja ráðherra að halda áfram með svarið við skráningunni á upplýsingum og spyrja bara beint: Eru Landgræðslan og Skógræktin að nota sama gagnagrunninn til að skrá þau verkefni sem þær stofnanir bera ábyrgð á? Er það samþætt við gagnagrunna sem bændur eru að skrá í jörð.is? Ég kann nú ekki nafnið á þessu öllu en mig langar að fá upplýsingar um það.
Síðan langar mig að skipta aðeins um og ræða varnir gegn náttúruvá, verkefni ofanflóðasjóðs. Það kemur fram í fjárlagafrumvarpinu að í raun standa fjárheimildir á þessu sviði í stað milli ára og ég tel það í sjálfu sér mikilvægt, en ég vil líka draga það fram að þetta er mjög mikilvægur málaflokkur og meðan áætluð verkefni eru óunnin sem falla undir ofanflóðasjóð er mikilvægt að halda jafnt og þétt áfram. Fram kemur að hefja eigi verkframkvæmdir í tveimur sveitarfélögum á árinu 2019, Vesturbyggð og Fjarðabyggð. Ég vil því spyrja hvaða verkefni taki við eftir það.
Síðan langar mig að koma aðeins inn á umræðu um strandsvæðisskipulagið. Eins og kunnugt er var samþykkt frumvarp um strandsvæðisskipulag í júní og fram kemur í fjárlagafrumvarpinu að hafinn verði undirbúningur að strandsvæðisskipulagi fyrir Austfirði og Vestfirði. Ég verð eiginlega að líta þannig á að það sé þá vinnan við gerð skipulagsins sem fari fram á árinu 2019. En mig langar að spyrja ráðherra hvað undirbúningnum líði því að hann stendur væntanlega yfir núna.