149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[21:04]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Varðandi gagnagrunnana er ég ekki alveg með það 100% á hreinu en ég veit til þess að Landgræðslan og Skógræktin beita í kolefnisbókhaldi sínu ákveðinni aðferðafræði sem gengur út á það að mæla bæði í ofanjarðarhlutum og neðanjarðarhlutum það magn kolefnis sem er bundið en hvort það sé algjörlega samræmt, það þekki ég ekki nógu vel, við getum komist að því hins vegar. Ég tel að það sé ekki sérstaklega samræmt við þá aðra þætti sem hv. þingmaðurinn nefndi, en kannski skilur sá sem hér stendur ekki spurninguna alveg 100% , svo það sé sagt alveg eins og er.

Varðandi haf- og strandsvæðisvinnuna eða haf- og strandsvæðisskipulagsvinnuna kallaði ég strax í júní eftir tilnefningum í svæðisráðin sem eiga að vinna þetta með aðstoð Skipulagsstofnunar og þær tilnefningar eru að koma í hús, þannig að við stefnum á að þessi vinna hefjist í haust. En hvað hún mun taka langan tíma fer svolítið eftir því hversu vel gengur og hversu mikið fjármagn er í þessu en minn hugur stendur til þess að geta stutt vel við það.

Varðandi náttúruvána deili ég algjörlega þeirri skoðun hv. þingmanns að hér er um mjög mikilvæg mál að ræða og framkvæmdarverkefni á næsta ári fara af stað í Neskaupstað, framkvæmdir eru sem sagt að hefjast þar undir Urðarbotnum. Síðan er þá hönnun á Patreksfirði að fara í gang á næsta ári og frumathuganir á allmörgum stöðum, í Hnífsdal, á Patreksfirði, Bíldudal og Seyðisfirði. Vinnan heldur því áfram en hún fer náttúrlega mjög mikið eftir því fjármagni sem til staðar er. Og þá er tíminn búinn.