149. löggjafarþing — 5. fundur,  17. sept. 2018.

lyfjaöryggi.

[15:11]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Kjarninn í lyfjastefnu okkar er í rauninni tvíþættur, annars vegar að tryggja aðgengi að lyfjum og hins vegar að stemma stigu við ofnotkun. Þetta getur verið, eins og gefur að skilja, vandrataður vegur og rétt sem hv. þingmaður nefnir, að við verðum að gæta þess að megininntakið snúist ekki um það að stemma stigu við ofnotkun og missa þá sjónar á mikilvægi þess að þessi brýni þáttur heilbrigðisþjónustunnar sé aðgengilegur og sé í samræmi við það sem best gerist í heiminum.

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands er að gera úttekt á smásölumarkaðnum, hvernig hann hefur verið að þróast undanfarin ár, hvort hann er í samræmi við markmið laganna og hvernig við viljum sjá smásölu á lyfjum þróast því að þar fer náttúrlega fram hluti af heilbrigðisþjónustunni samkvæmt öllum venjulegum skilgreiningum og mikilvægt að þar séu faglegar kröfur í hávegum hafðar rétt eins og annars staðar í heilbrigðisþjónustunni.