149. löggjafarþing — 5. fundur,  17. sept. 2018.

nýting fjármuna heilbrigðiskerfisins.

[15:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra er nýbúinn að leggja fram fjárlagafrumvarp svo það er honum eflaust í fersku minni hversu erfitt getur reynst að mæta þörfum heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi. Ég gef mér að hæstv. ráðherra sé sammála mér um það að við megum gera ráð fyrir því að kostnaður við heilbrigðisþjónustu muni bara aukast jafnt og þétt og þar af leiðandi verði það sífellt mikilvægara að skattgreiðendur, almenningur, fái sem mest fyrir það fjármagn sem er til ráðstöfunar í þennan málaflokk.

Því spyr ég hæstv. ráðherra, manninn sem heldur utan um ríkiskassann fyrir hönd almennings: Hver er skoðun hans á því að það sé stöðugt að aukast að því er virðist eða sé a.m.k. viðvarandi ástand að sjúklingar leiti til útlanda í aðgerðir sem eru einar og sér að mér skilst oft og tíðum þrefalt dýrari en sams konar aðgerðir ef þær væru framkvæmdar á Íslandi? Svo bætist auðvitað við þetta ferðakostnaður, dvalarkostnaður og öll þau óþægindi sem af því leiðir að þurfa að leita sér lækninga í útlöndum þótt hún bjóðist hér heima.

Ef hæstv. fjármálaráðherra telur þetta óskynsamlega nýtingu á almannafé, mun hann þá beita sér fyrir því að breyting verði á? Og að menn nýti í meira mæli þá þjónustu sem er til staðar á Íslandi og nái þá vonandi til landsins fleiri læknum, því að sögn sérfræðilækna eru líklega tugir vel menntaðra íslenskra lækna í útlöndum sem treysta sér ekki til að koma heim og starfa í því umhverfi sem hér er boðið upp á, enda því skyldu þeir gera það? Sjúklingarnir eru sendir til þeirra, fremur en að þeir komi til Íslands til að taka þátt í heilbrigðiskerfinu hér.