nýting fjármuna heilbrigðiskerfisins.
Virðulegi forseti. Í þessari fyrirspurn er kannski komið inn á nokkra mjög stóra og mikilvæga fleti í heilbrigðismálum í landinu. Í fyrsta lagi mikilvægi þess að við nýtum þá fjármuni sem allra best sem fara inn í heilbrigðiskerfið og þar held ég að við séum, ekki bara ég og hv. þingmaður heldur allir sem eru hér inni samankomnir, mjög sammála.
Komið er inn á biðlista. Hvers vegna myndast biðlistar? Hvers vegna stöndum við frammi fyrir því að þurfa í sumum tilvikum að samþykkja að sjúklingar ferðist yfir landamæri til þess að fá þjónustu? Það er ekki nægjanlegt að segja bara sem svo að það sé óheppilegt að við sitjum uppi með kostnaðinn heldur þurfum við að kafa dýpra og fara ofan í rætur vandans.
Þegar menn spyrja hvort ég styðji það að við nýtum kosti einkaframtaksins í heilbrigðiskerfinu eins og við höfum gert fram til þessa held ég að engum komi á óvart að ég tel eðlilegt að einkaframtak þrífist í heilbrigðiskerfinu eins og við sjáum nú þegar svo víða, t.d. frjáls félagasamtök, eins og SÁÁ eða hreinlega öll tannlæknastéttin í landinu sem er rekin fyrst og fremst á einkagrundvelli. Ég held að það sé alveg ótvírætt að við getum tryggt þetta.
Ég held hins vegar að mikilvægt sé að kafa dýpra en skoða svona einstaka þætti. Þar á að vera kjarnaatriði að öllum landsmönnum sé tryggð örugg gæðaþjónusta, öll grunnþjónusta, að við notum heilbrigðiskerfið í landinu til þess að jafna kjörin hvað þetta snertir og að enginn eigi að þurfa að hafa áhyggjur af því hvort hann leitar á þennan staðinn eða hinn þegar kemur að því að fá góða þjónustu, fá réttu lyfin. Ég held að þörf sé á að stokka kerfið okkar (Forseti hringir.) að hluta til upp að nýju, það sé orðið aðeins of stagbætt og of mikill bútasaumur og það sé þörf fyrir heildstæða nálgun.