vextir og verðtrygging.
Herra forseti. Almenningur á Íslandi hefur árum saman verið í fjötrum verðtryggingar og hárra vaxta á húsnæðislánum. Verðtrygging var sett fyrir 40 árum eins og kom hér fram, þá voru efnahagsaðstæður á Íslandi allt aðrar. Verðbólga var um 60% og óstöðugleiki mikill. Í dag búum við við allt aðrar aðstæður. Verðbólgan er 2,5% og stöðugleiki ríkir í efnahagslífinu. Engu að síður búum við enn við verðtryggingu. Það þarf ekki að fara lengra en til Færeyja til þess að fá mannsæmandi lánakjör á fasteignamarkaði.
Úr þessum stól hefur margsinnis verið rætt um mikilvægi þess að minnka vægi verðtryggingar á íslenskum fjármálamarkaði. Stjórnmálaflokkar lofa reglulega og þá einkum í aðdraganda kosninga að afnema verðtrygginguna. Ekkert gerist eins og við þekkjum og ég er reyndar þeirrar skoðunar að stjórnmálamenn skorti skörungsskap til þess að afnema verðtrygginguna. Þetta frumvarp, þar sem ég er meðflutningsmaður, er mikilvæg og skynsamleg leið til þess að draga úr vægi verðtryggingar.
Í greinargerð með frumvarpinu á bls. 4 er athyglisverð umfjöllun um ofmat vísitölu neysluverðs, þ.e. það er almennt viðurkennt að vísitala neysluverðs ofmetur almennar verðlagshækkanir. Þetta ofmat getur verið árlega á bilinu 5–25 milljarðar kr., miðað við að verðtryggðar skuldir heimilanna nemi um 1.700 milljörðum eins og fram kemur í greinargerðinni. Þessa skekkju, þetta ofmat, þurfa lántakendur, heimilin í landinu að bera. Þarna er verið að auka skuldir heimilanna um háar upphæðir með mjög vafasömum hætti.
Hvaða réttlæti er það að lántakendur þurfa að borga fyrir skekkju í mælingum? Hvers vegna er ekki tekið tillit til þessarar skekkju af hálfu lánveitenda? Hér er um hreina og klára eignatilfærslu að ræða og sumir myndu nú bara kalla þetta á góðri íslensku þjófnað. Flestar rannsóknir sem gerðar hafa verið á heildarskekkju í vísitölumælingum benda til þess að hún sé jákvæð og vísitölumælingar ofmeti því verðbólgu. Þetta er alvarlegt mál fyrir almenning á Íslandi sem býr í fjötrum verðtryggingar.
Ég tel að skekkjur í vísitölumælingum hafi ekki fengið nægilega verðskuldaða athygli hér á landi. Brýn þörf er á frekari rannsóknum á viðfangsefninu, enda kemur það flestum við. Mikilvægt er að gera ítarlega úttekt á skekkju í vísitölu neysluverðs á Íslandi og fá mat á heildarupphæðir sem þar um ræðir. Slík rannsókn mun treysta nákvæmar mælingar vísitölunnar sem er heimilunum mjög mikilvægt. Mikilvægt er að vel sé staðið að rannsókn á heildarskekkju í vísitölumælingum svo að niðurstöður séu áreiðanlegar og hlutlausar þannig að þær verði almennt viðurkenndar. Það verður að taka tillit til áhrifa skekkjunnar þannig að það dragi úr eignatilfærslu vegna hennar.
Herra forseti. Öldungadeild bandaríska þingsins hefur látið rannsaka hlutverk vísitölu neysluverðs í velferðarkerfi ríkisins og til að veita ábendingar um hvað betur mætti fara. Niðurstaðan var sú að skekkja í vísitölumælingum væri líklega meiri nú en áður vegna aukins fjölda nýjunga, örari tækniþróunar og aukinnar eftirspurnar eftir þjónustu og gæðum sem geri mælingar flóknari. Nýjungarnar voru áður teknar inn í vísitöluna með mun meiri töf en gengur og gerist í dag. Oft voru vörur komnar í almenna notkun á meiri hluta heimila áður en þær urðu hluti af grunni vísitölu neysluverðs. Það er mikill veikleiki vísitölunnar að hún tekur ekki tillit til þeirrar staðreyndar að neytendur hafa tilhneigingu til þess að versla minna af vörum sem hafa hækkað hlutfallslega í verði og meira af vörum sem eru orðnar hlutfallslega ódýrari.
Flestar rannsóknir í Bandaríkjum hafa sýnt að heildarskekkja í vísitölumælingum bendi til þess að hún sé jákvæð og vísitölurnar ofmeti því verðbólgu eins og áður segir. Með tímanum breytist neyslumynstur heimilanna. Grunnurinn sem mælir vísitöluna hættir að endurspegla neyslusamsetningu þeirra. Vogirnar sem mæla þennan grunn þarf því reglulega að aðlaga að breyttri neyslusamsetningu. Við fáum afskaplega litlar fréttir af því hversu reglulega þetta er uppfært. Það eru gerðar svokallaðar úrtakskannanir á vöruflokkum. Verðupplýsingum er safnað reglulega á meðan við vitum lítið um það hvenær vogirnar eru metnar.
Þegar við kaupum t.d. eldsneyti þá er það fullkominn tölvubúnaður sem mælir magnið sem við kaupum og dælum á bifreiðina. Þessi búnaður er mjög reglulega yfirfarinn af Löggildingarstofu. Við treystum því að við fáum það magn á bílinn sem við borgum fyrir. Olíufélögin vilja að sjálfsögðu ekki að við fáum meira en við borgum fyrir, enda gerist það aldrei, það er vel passað upp á það. En þegar búnaður sem mælir vísitöluna mælir hana of háa, sem rannsóknir hafa sýnt að hann gerir iðulega, þarf almenningur að borga í formi hækkunar á lánum. Í þessu felst hróplegt óréttlæti.
Herra forseti. Fasteignalán eru tryggustu lán sem hægt er að veita. Veð í fasteign eru almennt talin bestu veðin. Eins og segir í greinargerðinni með frumvarpinu þá ættu viðtekin viðmið um áhættu og ávöxtun að leiða til þess að slík lán beri lægri vexti en almennt gerist í ljósi hinnar miklu tryggingar sem lánveitandi nýtur um verðgildi höfuðstóls og öryggis um endurheimt höfuðstóls. Ég vil taka heils hugar undir þetta. Því miður er ekkert tillit tekið til þessara miklu trygginga sem lánveitandi fasteignaláns býr við. Háir vextir á verðtryggðum lánum bera þess glöggt vitni. Þetta er klassískt dæmi um þann mikla aðstöðumun sem ríkir á Íslandi milli lántaka annars vegar og lánveitenda hins vegar.
Herra forseti. Þetta frumvarp er mikilvægt fyrir heimilin í landinu. Það er vel unnið. Því fylgir ítarleg greinargerð sem ber vott um þekkingu og skynsemi þess sem hana hefur unnið, fyrsta flutningsmanns, hv. þm. Ólafs Ísleifssonar. Ég fagna þessu frumvarpi og ég tek undir það sem hér kom fram. Ég vona að það muni njóta víðtæks stuðnings í þinginu og verði að lögum, almenningi til heilla.