149. löggjafarþing — 5. fundur,  17. sept. 2018.

vextir og verðtrygging.

16. mál
[19:43]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni og nafna mínum andsvarið. Það er alveg rétt, Norðmenn eru með sjálfstæða peningastefnu og sína sjálfstæðu mynt. Vaxtastigið þar er reyndar heldur hærra en hjá nágrönnum þeirra, hvort heldur sem litið er til Danmerkur, Svíþjóðar eða Finnlands, þegar við horfum alla vega á langtímavextina. Sá vaxtamunur hefur verið að aukast á ný eftir mjög góðan árangur Norðmanna; fyrir þremur til fjórum árum var vaxtamunur milli þessara landa lítill sem enginn en hann hefur aukist Norðmönnum í óhag á undanförnum misserum. Það er einhver kostnaður sem greinilega fylgir þessum sveiflukennda gjaldmiðli, sem er sveiflukenndur í þeirra tilviki eins og okkar.

Það er rétt, hér er fákeppni á fjármálamarkaði. Það væri þó óskandi að fleiri væru um hituna í þessu. Það er þó ágætt að hafa í huga að það eru kannski tveir áratugir síðan Íbúðalánasjóður var allsráðandi og eiginlega eini lánveitandinn á þessum markaði. Svo komu bankarnir inn á hann, svo lífeyrissjóðirnir, þannig að það hefur fjölgað verulega aðilum sem eru að veita húsnæðislán og langtímavextirnir hafa lækkað.

Ekki er mjög langt síðan raunvextir voru hér í kringum 6%. Ég hygg að þegar ég var að skoða mín fyrstu íbúðakaup hafi þeir verið á því bili, 6–6,5% raunvextir, af fasteignalánum en eru núna 3% og jafnvel minna en það, sem er auðvitað mikil breyting frá því sem var, þó í alþjóðlegu samhengi séu þeir samt mjög háir.

Ein meginástæða þess að hér er lítil samkeppni á fjármálamarkaði er sú að enginn af skandinavísku bönkunum hefur viljað starfa hér út af of litlu myntsvæði, það er stærsta ástæðan. Það er ein ástæða þess að ég hef viljað skoða evruna. Hv. þingmaður segir mig fastan í viðjum hennar, en ég tel hana einfaldlega bara skynsamlega lausn, hún mundi m.a. opna (Forseti hringir.) fjármálamarkaðinn. Fleira get ég nefnt hér til sögunnar. Ég skal koma betur að því í seinna andsvari.