149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

störf þingsins.

[15:11]
Horfa

Maríanna Eva Ragnarsdóttir (M):

Herra forseti. Nú hafa fjárlög ársins 2019 litið dagsins ljós. Veruleg innspýting á að vera í aðgerðum tengdum loftslagsmálum og er það vel. Þau tíðindi vekja þó upp margar spurningar og ég er ekki sannfærð um að öll svörin séu eins skýr og maður vildi. Eftir árið 2030 á að vera óheimilt að nýskrá bensín- og dísilbíla. Það er eftir einungis 12 ár. Er raunhæft að ætla að búið verði að koma upp hleðslustöðvum um allt land á þeim tíma? Er það eitthvað raunhæfara en að ætla að vegakerfið okkar verði orðið betur í stakk búið til að taka við sívaxandi umferðarþunga? Kannski er þetta ekki eins mikið mál og þetta hljómar. Ég get vel ímyndað mér að auðveldara sé að koma upp hleðslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni sem ég er hrædd um að muni sitja á hakanum í því þar sem orkudreifingu víða á landsbyggðinni er nú þegar áfátt. Tryggja þarf að nauðsynleg orka verði fyrir hendi, sérstaklega á landsbyggðinni, til þess að fyrirætlanir standist.

Ég fagna engu að síður þróuninni. Rafbílavæðing er tvímælalaust framtíðin, einkum í landi þar sem völ er á endurnýjanlegri orku. Þó heyrist mér að framleiðsla rafmagnsbíla valdi mun meiri mengun en framleiðsla bíla úr jarðefnaeldsneyti. Vonandi verður framleiðsla rafmagnsbíla umhverfisvænni í náinni framtíð. Það er spurning hvort hér eigi ekki að horfa á báða enda, ekki bara annan. Er betra að eitthvert annað land sé umhverfissóði, eða eins og sagt er: Ekki benda á mig?

Einnig er fyrirhuguð hækkun á kolefnisgjaldi árið 2019. Ég set mig ekki upp á móti gjaldi á meira mengandi kostum, en ég held að nokkuð ljóst sé að það muni líka fara út í verðlag og neyslu nauðsynjavara úti á landi þar sem flutningskostnaður mun aukast í kjölfarið. Ég leyfi mér a.m.k. að efast um að hækkaði persónuafslátturinn muni duga fyrir pylsu og kók í Staðarskála.