149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Þó að bókmenntalestur virðist í fljótu bragði vera nokkuð langsóttur undir liðnum störf þingsins langar mig engu að síður og að gefnu tilefni að lesa dálitla frásögn úr þjóðsögum Jóns Árnasonar sem fjallar um íslenskt hugvit og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Bakkabræður höfðu tekið eftir því að veðurlag var kaldara á vetrum en sumrum og eins hinu að því kaldara var í hverju húsi sem fleiri og stærri voru á því gluggarnir. Þeir þóttust því vita að allt frost og bitra væri af því komið að hús væri með gluggum. Þeir tóku sig því til og gerðu sér hús með nýju lagi að því leyti sem þeir höfðu engan glugga á því, enda var þar kolniðamyrkur inni sem nærri má geta. Þeir sáu reyndar að þetta var dálítill galli á húsinu, en bæði hugguðu þeir sig við það að hlýtt mundi verða í því á vetrum, og eins héldu þeir að mætti bæta úr því með góðum ráðum. Þeir tóku sig því til einn góðan veðurdag þegar glaðast var sólskin um hásumarið og fóru að bera út myrkrið úr húsinu í húfum sínum, sumir segja í trogum, hvolfdu úr þeim myrkrinu, en báru aftur inn í þeim sólskin í húsið og hugðu nú gott til birtunnar eftirleiðis. En þegar þeir hættu um kvöldið og settust að í húsinu sáu þeir ekki heldur en áður handa sinna skil.“

Síðan Bakkabræður stóðu í þessum stórræðum hefur mikið vatn runnið til sjávar. Nú höfum við Íslendingar hugvit til að lýsa upp sólskinið á björtum sumardegi fyrir aðeins rúmlega 20 millj. kr.