149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

störf þingsins.

[15:34]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Nú er eyjan Vigur í Ísafjarðardjúpi til sölu. Einstök náttúruperla og sögufrægur staður. Eyjuna hefur sama fjölskyldan byggt um langan tíma, jafnvel um aldir. Hver kynslóð hefur annast hana af þeirri virðingu sem þeir einir kunna sem líta á sig sem landverði og gesti á þessari jörð og skulu skila auðlind til komandi kynslóða, enda er hrein unun að sækja eyjuna heim og njóta náttúrunnar og sögunnar sem hún geymir.

Vigur er þjóðargersemi sem ekki þarf að fjölyrða um. Því væri eðlilegt og hefur verið mín tillaga að íslenska ríkið keypti eyjuna, tæki við keflinu og ræki hana í þeirri mynd sem hún er í í dag. Verðug gjöf ríkisins til þjóðarinnar á fullveldisári.

Á síðustu mánuðum hefur umræðan um eignarhald að jarðnæði verið áberandi. Við höfum verið að missa margar jarðir til erlenda fjárfesta og þar með auðlindir sem þeim fylgja. Umgengni og nýting á landi skiptir okkur líka miklu máli og ekki síst aðgengi almennings. Sagan er líka auðlind sem þarf að varðveita og það skiptir máli að hún sé almenningi aðgengileg.

Ríkissjóður hefur í gegnum tíðina gengið inn í kaup á jörðum sem talin hefur verið ástæða til að vernda og/eða nýta í þágu þjóðarinnar, svo sem Teigarhorn í Djúpavogshreppi, land við Jökulsárlón og nú síðast Geysissvæðið, misverðmæt svæði, þá sérstaklega í fjárhæðum. Hvert er verðmæti lands, sögu og náttúru? Það er ekki einungis metið í krónum heldur hvaða augum við lítum á það sem einstaklingar, samfélag og þjóð.

Virðulegur forseti. Það er sagt að hver líti sínum augum silfrið. Við getum verið sammála um að perlu eins og Vigur þurfi að varðveita fyrir komandi kynslóðir. Því skora ég á stjórnvöld að íhuga það vandlega að festa kaup á henni.