149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

mannanöfn.

9. mál
[16:39]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Ég þakka fyrir þessa snjöllu spurningu sem rekur mig náttúrlega gersamlega á gat. GAT. Það er fangamark mitt eins og ég fékk þráfaldlega að heyra þegar ég var í barnaskóla. G-A-T, Guðmundur Andri Thorsson. Ég fékk líka þráfaldlega að heyra það í barnaskóla að Andri, ég var einn af fáum mönnum þá á landinu sem hét þessu nafni, væri alveg sérstaklega fíflalegt nafn. Hugsanlega hefði barnaverndarnefnd skorist í leikinn, ég veit það ekki. Ég held hins vegar að það séu til einhverjir mælikvarðar á það hvað er fíflalegt þó að þeir séu ekki alveg skýrir, t.d. ef ég eignaðist son eða dóttur og kallaði Tvíböku eða eitthvað þar fram eftir götunum, nokkuð sem fer mjög í bága við almennt velsæmi og sem við teljum augljóslega til þess fallið að vera verulega íþyngjandi fyrir viðkomandi barn.

Ég held að við höfum flest þennan mælikvarða en hann er fljótandi og hann er breytilegur, samanber það að nokkrum árum síðar varð nafnið Andri eitt helsta tískunafn landsins, þökk sé bókum Péturs Gunnarssonar.