mannanöfn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir ræðuna. Hann sagði m.a., og þetta er náttúrlega haft eftir eftir minni, að þetta væri eitt af óþörfustu frumvörpum sem hér hefðu komið fram. Það sem mig langar að inna þingmanninn eftir er hvort honum þyki þá núverandi mannanafnalög algjörlega fullkomin, til að mynda 2. mgr. 1. gr. þar sem segir að eiginnöfn og millinöfn megi aldrei vera fleiri en þrjú samtals. Hvað kemur einhverri ríkisstofnun við hvort menn heita tveimur, þremur eða fjórum nöfnum?