149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

erfðafjárskattur.

10. mál
[17:51]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Hérna kemur auðvitað að því að hér er grundvallarágreiningur, og kemur ekki á óvart, á milli mín og hv. þingmanns. Ég er í hjarta mínu á móti því að erfðafjárskattur sé lagður á. Það er vegna þess að ég tel búið að greiða skatta og gjöld og að þeir sem erfa þessar eignir muni halda áfram að greiða þau. Þeir sleppa ekkert undan þeim sköttum og gjöldum sem lögð eru á eignir, fjármagnstekjur og annað, til framtíðar. En hv. þingmaður talar fyrir einhvers konar eignaupptöku. Ég ætla aldrei að fara í þá vegferð með hv. þingmanni. Hann getur verið alveg rólegur yfir að í þann bát mun ég aldrei skrá mig.