149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

erfðafjárskattur.

10. mál
[17:52]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Þingmálið er allrar athygli vert og ber að þakka fyrir að það er lagt fram. Ég hef velt þessu aðeins fyrir mér og mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi velt því fyrir sér að horfa á þetta, þ.e. fyrirkomulag erfðafjárskatta, meira út frá þeim eignum sem færast yfir á hvern arftaka frekar en heildarsummu búsins. Í því samhengi a.m.k. hugnast mér sú aðferðafræði betur og velti því í það minnsta fyrir mér, ég var nú ekki búinn að forma það í mínum huga, hvort hægt væri að búa það í einhvers konar breytingartillögur eða annað frumvarp um erfðafjárskattinn.