149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

erfðafjárskattur.

10. mál
[18:11]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni andsvarið. Þetta er í raun mjög áhugaverð umræða, þ.e. að sumu leyti, eins og einhver myndi segja, existensíalísk umræða, hvað á að vera andlag skattheimtu og hvað ekki, hvernig tekjur, ef hægt er að kalla erfðafé tekjur, á að skattleggja og með hvaða hætti. Það er augljóst að íslenskt samfélag hefur einhvern tímann náð samstöðu um að þetta væri ekki alveg eins og aðrar tekjur, það er nokkuð ljóst. Fyrir átta árum er farið úr 5% upp í 10% um leið, ef ég man rétt, og sett er upp þetta lága frítekjumark ef svo má kalla. Það er alveg sjónarmið í þessu.

Það sem ég er að hugsa er að ég lít a.m.k. að einhverju leyti á erfðafjárskattinn sem tæki til þess að sporna við gliðnun í samfélaginu, þ.e. gliðnun á milli hinna efnamestu og hinna efnaminnstu. Þess vegna finnst mér mikilvægt að það sé þrep neðst, að menn borgi ekki af mjög lágum upphæðum. Fyrir þá sem fá minnst í þessu skipta þessir peningar kannski mestu máli.