erfðafjárskattur.
Hæstv. forseti. Það kemur mér svo sem ekkert á óvart að VG-liðar líti á þetta sem tækifæri til eignajöfnunar, til að berjast fyrir alls konar jöfnuði. Ég horfi á þetta allt öðruvísi. Ég geri auðvitað greinarmun á því hvers eðlis þetta er, hver er að erfa, hvernig þetta verður til. Er þetta hluti af fjölskyldueign eða er þetta arfur til óskylds aðila, jafnvel þó að það sé lögerfingi en ekki skylduerfingi? Ég geri greinarmun á þessu öllu og hef miklu meiri tilhneigingu til að líta á það sem beinar tekjur þegar Jón Jónsson úti í bæ fær 10 milljarða í arf. Það er alveg rétt.
En ég held að það sé góð niðurstaða í þessu frumvarpi og held að við getum vel við unað. En ég held að það megi alveg útvíkka þessa umræðu og fara betur yfir þennan skatt eins og alla aðra skattstofna ríkissjóðs. Hvað er eðlilegt að gera í því, hvað er réttlátt? Ég vil ekki horfa á þetta sem tæki til þess að koma í veg fyrir að einhver eigi of mikið að mati einhvers eða neitt slíkt. Ég vil láta jafnt yfir menn ganga sem eru í sömu stöðu. Auðvitað geta menn verið í misjafnri stöðu og eðlilegt að menn greiði mismunandi skatt eftir því hver tengslin eru við arfleiðanda. Þess vegna var mikil barátta fyrir því á sínum tíma að koma í veg fyrir að maki greiddi erfðafjárskatt. Það var í raun og veru bara verið að skattleggja makann sjálfan.