149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

sjúkratryggingar.

11. mál
[18:50]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar til að byrja fyrri umferð, af því að ég hef tvær, á að velta fyrir mér því sem kemur fram í greinargerð með þessu frumvarpi, að það ríki markaðsbrestur sem sé seljendum í hag. Ég er eiginlega ósammála því. Markaðsbresturinn á þessum markaði er vegna þess að það ríkir fákeppni af því að það er bara einn kaupandi. Því færri sem seljendurnir eru, því meiri líkur eru á að kaupandinn nýti ekki fjármunina eins og best verður á kosið.

Ég hefði einmitt haldið að við þessar aðstæður væri mikilvægara, í stað þess að auka heimildir þessa eina kaupanda til að haga sér að vild ef svo má segja, að við ýttum undir að hann hagaði sér eins og ábyrgur kaupandi og nýtti fjármuni okkar allra sem best.

Ég sat á fundi velferðarnefndar í morgun með einmitt hv. þingmanni þar sem hæstv. ráðherra fór yfir hugmyndir sínar eða vænta tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu sem hún er að vinna núna og mér líst vel á hvernig hún vinnur hugmyndina. Hún lagði mikla áherslu á að þetta væri ekki pólitískt plagg, að þarna væri lykilviðfangsefnið stjórnun og samhæfing, veiting heilbrigðisþjónustu, fjármögnun, greiðslukerfi, kaup og annað slíkt. Síðan kæmi pólitíska plaggið í kjölfarið sem er þá aðgerðaáætlun sem kemur einhvern tímann á eftir. Þannig virkar þetta.

Þá komum við að fyrri spurningunni. Ég velti fyrir mér í allri einlægni og spyr hv. þingmann: Af hverju koma samþingflokksmenn hæstv. ráðherra á þessu stigi með þessa tillögu sem talar beint inn í vænta aðgerðaáætlun? Þetta dregur að mínu mati óneitanlega úr trúverðugleika þess að hæstv. ráðherra sé raunverulega að leggja fram stefnu sem engin pólitík rörsýn sé í, svo ég vitni í sjálfa mig, og ætli að gera þetta allt mjög faglega. Það er eiginlega fyrsta spurningin. Ég spyr hv. þingmann.