sjúkratryggingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir andsvarið. Það að það sé markaðsbrestur á heilbrigðisþjónustumarkaði er ekki hugmynd frá mér. Það er hugmynd nánast allra þeirra fræðimanna sem hafa skrifað um heilbrigðisþjónustumarkað sem kaupenda- og seljendamarkað, þ.e. að þeir sem kaupa þjónustuna, þá ég við notendurna, eru alltaf í vonlausri aðstöðu gagnvart seljandanum. (HKF: Þú ert að tala um … notandann …) Já, þeir eru alltaf í vonlausri aðstöðu gagnvart seljandanum eða erfiðri aðstöðu vegna þess að hann er að selja vöru sem þeir þurfa lífsnauðsynlega að kaupa. Það sjónarmið getur að þessu leyti til einnig átt við um stóran kaupanda eins og ríkið.
Meðal annars þess vegna er markaðsbresturinn. Það er ekki hægt að bera þetta saman. Ef ekkert slíkt væri í gangi værum við ekki með almannaheilbrigðiskerfi, sjúkratryggingar og allt þetta, þá væri þetta bara eins og hver önnur vara á markaði, en það er ekki þannig og það er ekki að ástæðulausu.
Af hverju nú? er spurning hv. þingmanns. Hv. þingmanni til glöggvunar vil ég nefna að frá árinu 2003, ef ég man rétt, hefur þetta verið í stefnu Vinstri grænna, þ.e. okkar ýtrasta stefna gengur út á að við viljum tryggja að það sé enginn „for-profit“ rekstur í heilbrigðiskerfinu. Við leggjum það ekki til hér. Ég get hins vegar fullvissað hv. þingmann um að heilindi ráðherra hvað það varðar að leggja fram almennilega heilbrigðisstefnu sem geti staðið hver svo sem stjórnar heilbrigðiskerfinu eru alger.