149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

sjúkratryggingar.

11. mál
[18:58]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Forseti. Ég get ekki að því gert að mér finnst þetta mál einmitt endurspegla andúð á einkarekstri í heilbrigðiskerfinu og jafnvel ákveðna andúð á einkarekstri almennt.

Hið opinbera kaupir þjónustu og vörur af fjölmörgum aðilum í heilbrigðiskerfi og líka í fjölmörgum öðrum þáttum, vegagerð, menntakerfi og svo mætti endalaust áfram telja. Þá veltir maður aðeins fyrir sér hugmyndinni um jafnræði og atvinnufrelsi og ég vildi gjarnan heyra sjónarmið hv. þingmanns í því. Af hverju má einstaklingur sem hefur jafnvel fjárfest verulega í menntun sinni á sviði heilbrigðismála — og vill hagnýta sér þá þekkingu til að starfa, m.a. fyrir ríkið — ekki taka sér arð út úr þeirri starfsemi með sama hætti og allir aðrir sem starfa í sölu á vörum og þjónustu til hins opinbera?

Og þetta á ekki bara við þarna. Þegar kemur að heilbrigðiskerfinu sjálfu myndi ég ætla í grófum dráttum að helmingur útgjalda ríkisins til heilbrigðismála félli undir ákvæði þessara hugmynda þeirra hv. þingmanna sem að þessu máli standa, þ.e. snúi að kaupum á þjónustu sérfræðinga eða sérhæfðs starfsfólks í heilbrigðisþjónustu. Þegar kemur að öllum vörukaupum — lyfjakaupum, tækjakaupum, leigu á fasteignum, viðhaldi á fasteignum, hönnun á fasteignum, lögfræðiþjónustu, bókhaldsþjónustu eða guð veit hvað — þá gilda hagnaðarsjónarmið alveg fullum fetum. Þá velti ég fyrir mér: Eru einhverjar aðrar krónur í heilbrigðiskerfinu sem eru að fara í þennan rekstur en þær sem fara í bein kaup á sérmenntuðum heilbrigðisstarfsmönnum?