149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

sjúkratryggingar.

11. mál
[19:07]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Hæstv. forseti. Ég velti því auðvitað mikið fyrir mér til hvers þetta frumvarp er. Það er alveg ljóst og hefur alltaf verið ljóst, og enginn verið að vandræðast með það, að ráðherra gerir þessa samninga. Hann getur sett hvaða skilyrði sem er, t.d. um „non-profit“ eða „ekki hagnaðardrifin“, sem er hugtak sem er fullkomlega óskýranlegt.

Menn verða að átta sig á hvað rekstur er. Ef ég stofna heilbrigðisfyrirtæki er einhver stofnkostnaður. Ég þarf væntanlega að taka lán til að geta keypt þau tæki og tól sem ég þarf. Það er fjárfesting. Síðan er auðvitað einhver fastur rekstrarkostnaður og svo eru það laun. Þannig er skiptingin í þessu. Allur hagnaður sem síðan verður er auðvitað ekkert annað en laun. Okkur getur fundist þau há. Hægt er að taka hagnað út með ýmsum hætti; með því að hafa há mánaðarlaun eða tiltölulega lág og í lok ársins taka það sem eftir stendur í laun.

Hv. þingmaður talaði um það áðan að nota hagnaðinn til að greiða betri laun til fólksins sem vinnur á stöðunum og hagnaður er nákvæmlega það. Ég held að þetta sé bara einhver þvælingur með orð. Þetta er auðvitað hluti af þeirri hugmyndafræði, sem er allt í lagi að aðhyllast, að það eigi bara ekkert að vera að þvælast með einkarekstur í heilbrigðisþjónustu. Maður upplifir það alla vega en það kann að vera að ég sé að ýkja þetta örlítið. En að setja svona skilyrði yfir höfuð í samning er mjög sérstakt. Ef ég væri heilbrigðisráðherra myndi ekki vilja skipta við fyrirtæki í taprekstri. Ég myndi vilja semja við fyrirtæki sem væri með hagnað. Eðli málsins samkvæmt. Ég hefði engan áhuga á að borga tapið af rekstrinum.

Þetta á auðvitað ekkert að snúast um þetta. Þetta á ekkert að snúast um „non-profit“ eða „ekki hagnaðardrifið“. Það sem þetta á að snúast um er nákvæmlega þetta: Hvað fær kaupandinn, sem er ríkið, fyrir peninginn?

Ef ég sem heilbrigðisráðherra væri að semja við eitthvert einkafyrirtæki úti í bæ væri ég ekki að semja við það yfir höfuð um þjónustu nema ég hefði á tilfinningunni að hún væri betri og ódýrari en ég fæ á spítalanum, ef spítalinn eða hið opinbera getur ekki séð um það. Ég myndi ekkert semja öðruvísi. Þannig að ég skil þetta vandamál ekki, þetta er mér algjörlega óskiljanlegt.

Ég get ekki heldur samþykkt það að heilbrigðisþjónusta sé eðlislægt eitthvað öðruvísi en önnur þjónusta. Hvað er eðlislægt öðruvísi við það að kaupa lyf af stórfyrirtæki sem jafnvel á í Kauphöll? Sá sem afhendir sjúklingnum síðan það sama lyf má ekki hagnast á því, sá sem treður lyfinu ofan í hann. Ætla menn að reyna að halda því fram að það sé eðlismunur á þessu tvennu? Það er varla stigsmunur.

Ég held að menn eigi að hætta að hugsa um opinberan rekstur og/eða einkarekstur. Þetta snýst allt um það hvar skattgreiðendur fá góða þjónustu fyrir sem minnstan pening. (Gripið fram í.) Ef það er á spítala þarf ekkert að vera að semja við eitthvert fyrirtæki. En ef einkafyrirtæki getur boðið mér, í útboði jafnvel, eitthvað sem ég tel hagstætt fyrir skattgreiðendur — ódýrari og jafnvel betri þjónustu — sem ég bara við það. Það skiptir mig engu máli hvort sá hinn sami geti greitt sér einhvern arð í enda ársins eða ekki. Það skiptir mig bara engu máli. Það er það sem er lykilatriði í þessu.

Ég er ekki fastur í því að við verðum að semja við lækna úti um allar trissur. Það er ekkert prinsippatriði hjá mér. Ég hef engan áhuga á að hola Landspítalann að innan. Ég vil hafa sterkt sjúkrahús með öfluga þjónustu í góðum tengslum við háskólann — þetta er nú ríkisapparat allt saman — ég vil hafa gott háskólasjúkrahús. Ekki er þar með sagt að öll þjónusta sem spítalinn sinnir sé ódýrust þar, að ekki sé hægt að sinna henni betur annars staðar, það er örugglega ekki allt. Ég vil bara horfa á þessar staðreyndir. Ég vil fara vel með peninga skattgreiðenda. Þannig fæ ég bestu þjónustuna.

Það truflar mig ekkert að Jón Jónsson læknir geti greitt sér 10 milljónir í arð í árslok, kannski af því að hann tók sér bara 700.000 kr. í mánaðarlaun og borgar sér svo restina í arði. Það er kannski (Gripið fram í.) — það skiptir engu máli. (Gripið fram í.) Nei, það er nefnilega ekki þannig, hann þarf að borga skatt af arðinum. Fyrirtækið er líka búið að borga skatt, menn gleyma því. Menn halda alltaf að 20% fjármagnstekjuskattur sé lægri skattur. Hann er ekki lægri (Gripið fram í.) — eða 22%, hann er kominn í 22%. [Hlátur í þingsal]. Það var góð leiðrétting hjá hv. þm. Óla Birni Kárasyni. Það eru margir menn á vinstri vængnum sem halda að 22,5% fjármagnstekjuskattur af arði sé lægri skattur. (Gripið fram í.) Það er bara mikill misskilningur. Menn eru meira að segja með fjármagnstekjuskatt af engum tekjum. Það er önnur umræða.

Svona vil ég nálgast þetta, hv. þm. Ólafur Gunnarsson. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum ekki að festast í kreddum í þessu, að þetta verði bara eins og einhver trúarbrögð, að við megum annaðhvort ekki hafa opinberan rekstur eða ekki einkarekstur. Þetta snýst allt um það að við náum hagstæðum einingum til að sinna ákveðinni þjónustu fyrir okkur. Stundum er það á spítalanum, stundum er það hjá sérfræðilæknum. Stundum getur það verið á einhverri klíník. Og þá er það bara allt í lagi.

Ég sef ekkert illa yfir því að sú klíník borgi einhvern arð. Ég er líka alveg viss um að mestmegnis af arði þessara fyrirtækja fer í frekari fjárfestingar, ný tæki. Að vísu vilja fyrirtækin fá arð af stofnkostnaðinum, allt í lagi með það. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessu. Þetta er bara fín blanda hjá okkur og við eigum alltaf að leita bestu kostanna hverju sinni þar sem svona mikið skattfé fer í þetta. Við eigum alltaf að leita að því besta, hagkvæmasta, nýtískulegasta o.s.frv.

Ég veit að margir hugsa á þann veg að öll þessi þjónusta verði að vera á vegum ríkisins. Það er auðvitað af pólitískum ástæðum og kannski tilfinningalegum líka, og allt í lagi með það. En þið getið verið alveg viss um það, ágætu hv. þingmenn, að það er ekki alltaf ódýrast að reka hlutina sjálfur, sérstaklega ekki þegar um er að ræða risastórt batterí þar sem menn hafa litla yfirsýn yfir hvað er að gerast, hver framlegðin er o.s.frv. — og kannski vegna þess að menn hafa engan arð af því að vera duglegri eða leggja meira á sig af því að þeir eru alltaf með sömu launin. Þess vegna er kannski miklu meiri framlegð þegar menn reka eigin fyrirtæki, þegar langur vinnudagur og dugnaður auka tekjur þeirra. Við getum grætt á því, ríkissjóður, skattgreiðendur. Við getum grætt verulega mikið á því.

Frumvarpið sem slíkt er auðvitað ekki neitt neitt og breytir engu fyrir okkur í sjálfu sér. [Hlátur í þingsal.] En í því er samt veruleg pólitísk yfirlýsing sem ég er raunverulega að agnúast út í. Frumvarpið sem slíkt lokar auðvitað ekki fyrir neina samninga en gefur heimild o.s.frv. Einhvern veginn hefur maður á tilfinningunni að núverandi heilbrigðisráðherra myndi nýta þær heimildir talsvert, kannski frekar en fyrrverandi, sem þó gerði það. En það er líka allt í lagi. Menn mega alveg hafa sínar skoðanir á þessu, ég skil það alveg, en ég vil bara ekki festast í því sem ég kalla kreddur. Þetta er tilfinningalegs eðlis, svona pólitískt líka. Ef við erum föst í því gætum við ekki nógu vel hagsmuna skattgreiðenda. Ég held að við eigum alveg að geta sæst á það að þetta snúist um gæði þjónustunnar og hvað við fáum fyrir peninginn.