149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

sjúkratryggingar.

11. mál
[19:31]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég reikna með að það sé líka mjög mikil vinna að baki því að búa til lyfið og meta hverjum það henti. Að því koma margir læknar og þeir græða alveg á tá og fingri.

Okkur kann að greina á um það hvort þetta sé eðlislægur munur. Ég sé ekki þennan eðlismun. Ég sé ekki af hverju einhver önnur lögmál eiga að gilda um heilbrigðisþjónustu en aðra þjónustu sem ríkið kaupir. Allt snýst þetta um skattfé og góða þjónustu. Það á bara að vera útgangspunkturinn í mínum huga, ekki reyna að búa til einhvern eðlismun. Í besta falli er einhver stigsmunur en ekki eðlismunur í þessu að mínu viti og snýst eingöngu um það (Forseti hringir.) að fá sem mest fyrir peninginn og sem best.