149. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2018.

sjúkratryggingar.

11. mál
[19:35]
Horfa

Hjálmar Bogi Hafliðason (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hjó eftir því í ræðunni að Brynjar Þór Níelsson sagði að honum væri alveg sama þó að eigandinn greiddi sér arð. Þá komum við kannski að kjarna málsins í þessari umræðu, því að umræðan snýst ekkert endilega um innihaldið heldur einhvern pólitískan fnyk eins og þingmaðurinn sagði, þetta snýst einmitt um þann sem kaupir þjónustuna og borgar fyrir hana. Þingmaðurinn sagði, svo ég vitni í hann: Mér er bara alveg sama þó að eigandinn greiði sér arð.

Þá skulum við búa til það dæmi að arðurinn sé of lítill og ég þurfi meiri arð, væri þá þingmaðurinn til í að borga meira af því að gjaldskráin hefur hækkað?