byggðakvóti.
Virðulegi forseti. Þann 9. júní 2017 skilaði starfshópur sem skipaður var af fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, um endurskoðun á framtíðarskipan byggðakvóta af sér tillögum.
Þessar tillögur voru um margt áhugaverðar. Gerð var tillaga um langtímasamninga til tíu ára til að skapa meiri festu og auka líkur á að kvótinn nýttist til uppbyggingar. Tillögurnar gerðu líka ráð fyrir að sveitarfélögum sem fá kvóta verði leyft að leigja hann sín á milli og nýta tekjurnar í annars konar atvinnusköpun. Hér er kominn ákveðinn sveigjanleiki sem falið getur í sér mikil tækifæri fyrir minni sjávarbyggðir til að skapa sér ný tækifæri.
Vandinn sem við stöndum frammi fyrir í minni sjávarbyggðum er að undirstaða þorpsins er oft í höndum eins fyrirtækis eins og við þekkjum fjölmörg dæmi um. Þess vegna er mikilvægt að gefa þeim kost á að þróast áfram og finna nýjar undirstöður undir byggðina.
Sjávarbyggðir landsins hafa mátt þola ýmis skakkaföll í sjávarútvegi síðustu áratugina og ekki síst með tilkomu kvótakerfisins sem var í senn ætlað að vernda fiskstofnana og stuðla að hagræðingu í sjávarútvegi. Sú hagræðing hefur haft verulega neikvæð áhrif á margar sjávarbyggðir, sérstaklega smærri þorp sem eru fjarri stærri og öflugri atvinnusvæðum. Til dæmis hefur íbúum minnstu sjávarbyggða landsins fækkað um 37% frá 1984 til 2017.
Starfshópurinn, sem leiddur var af Þóroddi Bjarnasyni, prófessor í Háskólanum á Akureyri, fullyrðir að ákvarðanir löggjafans um úthlutun og framsal aflamarks hafi hrundið af stað þróun sem hafi grafið undan byggðafestu í smærri sjávarbyggðum.
Ég vil því beina fyrirspurn minni til hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: Hvernig líst ráðherranum á þessar tillögur? Hyggst hann nýta sér þær áfram í vinnu?