149. löggjafarþing — 8. fundur,  20. sept. 2018.

byggðakvóti.

[10:37]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svörin. Ég held að þetta sé gríðarlega mikilvægt verkfæri, að aðstoða þessar byggðir við að finna sér nýjan grundvöll. Það segir sig sjálft að það er kannski ekki skynsamlegt að vera með mikla útgerð í hverjum einasta firði landsins og það hefur orðið ákveðin samþjöppun. En við þurfum að hjálpa þessum byggðum við að finna sér ný tækifæri. Það þarf u.þ.b. 300 tonn af kvóta til þess að fjármagna t.d. Lýðháskólann á Flateyri, það eru um 326 tonn. Það eru auðvitað fjölmörg önnur verkefni sem byggja undir fjölbreyttari grunn og hjálpa byggðunum við að finna sér nýjan grundvöll. Mér finnst þessar tillögur mjög áhugaverðar og vil benda á að það eru stjórnvöld sem bera ábyrgð á hruni þessara byggða og þau verða að bregðast við.

Mér finnst þetta vera góð leið til að sýna smáviðleitni í þá átt að koma til móts við vanda þessara byggða.