framkvæmdir við Reykjanesbraut.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. samgönguráðherra svörin. Ég hefði viljað fá vegáætlunina miklu fyrr fyrir þingið þannig að við hefðum getað skoðað hana betur. Við verðum að átta okkur á því að nú er sá tími að koma að við verðum einn til tvo klukkutíma úr Hafnarfirði til Reykjavíkur og svo aftur einn til einn og hálfan tíma frá Reykjavík til Hafnarfjarðar með tilheyrandi mengun. Það er óásættanlegt næstu 20–30 árin. Ég bara trúi þessu ekki og ég skil ekki af hverju við erum ekki byrjuð að taka á því vandamáli.
Það er alltaf verið að tala um að slysin kosti svo mikið, að þau kosti tugi ef ekki hundruð milljarða. Þarna er stór slysabrunnur og við verðum að byrgja hann. En við verðum líka að hugsa rökrétt. Er eðlilegt að sitja í bíl í allt að einn og hálfan til tvo tíma á leiðinni frá Hafnarfirði til Reykjavíkur? Ég segi bara: Guð hjálpi þeim sem eru að koma alla leiðina utan af Reykjanesi. Hvað eru þeir lengi að komast leiðar sinnar? Þeir þurfa að fara í gegnum Garðabæ og Kópavog og eru kannski á leiðinni út úr bænum.