149. löggjafarþing — 8. fundur,  20. sept. 2018.

framkvæmdir við Reykjanesbraut.

[11:05]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt að einn vandinn, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu og sérstaklega á þeirri leið sem hv. þingmaður nefnir, er að umferðarflæði er ekki nógu gott. Það er vegna þess að allt of margir eru að fara í sömu átt á sama tíma. Það getur vel verið að vegamannvirki geti ekki eitt leyst slíka hnúta. Skólar gætu t.d. byrjað á öðrum tíma, hugsanlega síðar. Menn hafa talað um að unga fólkið okkar þurfi meiri svefn. Væri kannski skynsamlegt að framhaldsskólarnir byrjuðu aðeins seinna? Með sveigjanlegum vinnutíma gæti fólk kannski valið hvenær það fer af stað og mætir til vinnu þannig að ekki væru allir á ferð á sama tíma. Svo má ekki gleyma því að kannski er ekki skynsamlegt að hafa alla stærstu vinnustaði landsins á einum stað. Það getur verið skynsamlegra að hafa þá á fleiri stöðum þannig að fólk fari í tvær áttir í stað þess að allir fari í sömu átt á sama tíma.

Það eru til nokkrar leiðir fyrir utan vegamannvirki sem gætu leyst stíflur, svo það sé nú sagt.