efling trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu.
Herra forseti. Ég þakka þessa umræðu sem ætlað er að ræða leiðir til að efla traust á stjórnmálum og stjórnsýslu. Andstæðan við traust er vantraust, maður treystir ekki einhverjum, maður vantreystir honum, og stjórnmálamenn hafa ítrekað fengið falleinkunn hjá almenningi hvað traust varðar. Þeim er vantreyst.
Það er augljóst að það er sama hversu mikið eða lengi við ræðum þetta, við getum talað okkur hás, en viðbúið er að það eitt og sér muni ekki hreyfa neinar mælingar á traustsvísitölu stjórnmálastéttarinnar. Eins og endranær eru það gjörðir en ekki fyrirætlanir sem telja í þessum efnum.
Það má ekki skilja mig svo að ég sé á móti því að ræða þetta málefni því að það er í sjálfu sér gagnlegt, nauðsynlegt og til þess fallið að auka skilning á milli manna sem er einn hornsteinn góðs samfélags. Það er ekki einungis stjórnmálastéttin sem ber ábyrgð á því að traust á stjórnmálum er eins lítið og raun ber vitni. Þarna bera fjölmiðlar einnig mikla ábyrgð, hvernig þeir framreiða fréttir af stjórnmálum, að hverju þeir beina kastljósinu í hvert skipti og jafnvel hvað þeir kjósa að framreiða ekki. Tilkoma almennrar notkunar samfélagsmiðla hefur einnig haft mikið að segja. Þar er umræðan oft reið og óvægin, rætin og harkaleg. Og þótt menn taki ekki þátt í þessari umræðu á samfélagsmiðlunum smitar hún út frá sér og menn skiptast í hópa með og á móti. Allt er litað svart og hvítt, menn eru annaðhvort guðir eða skrímsli á samfélagsmiðlunum og góð umræða þar er oft rifin niður af svokölluðum nettröllum sem birtast víða og valda því að málefnaleg umræða fer á undraskömmum tíma fyrir lítið.
Ég get tekið undir orð sumra fyrri ræðumanna sem tengja minna traust á stjórnmálum og stjórnmálamönnum við bankahrunið, að þar hafi myndast rof í trausti milli fjölmargra hópa í samfélaginu sem ekki sér fyrir endann á. Hér var mikil reiði eftir hrun, sjálfar undirstöður þjóðfélagsins brugðust eða bognuðu. Trú á að bankar stæðu að eilífu var við lýði hér á landi þótt þeir færu á hausinn úti í henni „Ammríku“. Fólk tapaði á örskotsstundu sparifénu sem það hafði fest í hlutafélögum. Þar á eftir hækkuðu veðlán samfara lækkandi virði húsnæðis, atvinnuleysi, lækkuð laun og fólk missti heimili sín unnvörpum.
Þetta var reiðarslag fyrir allan þorra fólks. Það sem gerði útslagið voru afleiðingarnar fyrir heimilin. Það að 10.000 fjölskyldur skyldu missa heimili sín eftir hrun er óhugnanleg staðreynd sem við stöndum frammi fyrir. Fjármálastofnanirnar voru settar ofar á forgangslista stjórnmála og andlitslausir vogunarsjóðir fengu óáreittir að láta greipar sópa um kröfur á hendur heimilunum og gengu hart fram í skjóli réttarríkisins en heimilin höfðu engar eða litlar varnir. Þarna brugðust stjórnvöld heimilunum í landinu og enn er verðtryggingin laus og bíður eftir næsta verðbólguskoti.
Verðtryggingin er að störfum hvern nýtan dag. Fyrir hvern? Af hverju er verðtryggingin ekki afnumin? Af hverju er húsnæðisliður vísitölunnar ekki afnuminn, liður sem einn og sér hækkaði lán heimilanna um 118 milljarða meðan aðrir liðir hafa hækkað hann um 15 milljarða sl. fimm ár? Svarið er kannski það að stjórnvöld þora ekki að standa með heimilunum, þau stilla sér þess í stað upp með fjármálaöflunum. Verðtrygging á lánum heimila fyrirfinnst hvergi í nágrannalöndunum en stjórnvöld hér tala eins og himinn og jörð myndu farast ef hún yrði afnumin. Lagabálkur sem settur var upp fyrir 40 árum og hafði engar fyrirmyndir, séríslensk tilraun, hefur fært fjármálastofnunum yfirburðastöðu gagnvart heimilum í landinu með þekktum afleiðingum.
Af hverju er starfsemi fjárfestingarbanka og viðskiptabanka ekki aðskilin? Mikið var rætt um það eftir hrun að það bæri að gera og yrði að gera og væri nauðsynlegt. Af hverju er það ekki gert? Af hverju hefur ekkert orðið úr því?
Þetta vantraust eftir hrun hefur ekki gengið til baka. Hvað getum við gert? Forsætisráðherra skipaði starfshóp í þessu skyni. Allir eiga að hegða sér vel. Er þetta bara eitthvað sem við sjáum fram á að lifa við í ókominni framtíð? Það er ekki gott að segja. Kannski má segja að nú, á þeim tímum þegar hagsæld er í hæstu hæðum, megi ekki búast við að meiri friður ríkti ef hagsældin færi dvínandi nema síður væri. Svarið er a.m.k. ekki fólgið í því að ójöfnuður aukist því að stórir hópar fólks þurfa að lifa á lífeyri eða launum sem eru töluvert undir 300.000 kr. á sama tíma og jafnvel launamenn á vegum ríkisins eru með sjö- eða áttföld þau laun, svo ég tali ekki um ýmis önnur ofurlaun í einkageiranum.
Allt það sem ég hef nefnt er ekki til þess fallið að auka traust á stjórnmálum. Og hvernig eflum við traust? Almenningssamráð er klárlega eitt af svörunum. Við eigum alveg hiklaust að efna oftar til þjóðaratkvæðagreiðslna. Ég held að það gæti orðið þáttur í að leitast við að efla traust. Við eigum að vera óhrædd við að bera spurningar undir þjóðina. En heilt yfir, herra forseti, (Forseti hringir.) er heillavænlegast að reyna ávallt að gera okkar besta.