149. löggjafarþing — 8. fundur,  20. sept. 2018.

sjúkratryggingar.

11. mál
[15:02]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Forseti. Nú ætla ég ekki að þykjast vera sérfræðingur í nýrnalækningum í hinu bandaríska heilbrigðiskerfi. Það er auðvitað athyglisvert að í því sama heilbrigðiskerfi sjáum við hæstu útgjöld til heilbrigðismála sem hlutfall af landsframleiðslu þrátt fyrir allan þann einkarekstur, eða ég myndi frekar kallað það einkavæðingu, sem þar ríkir. Það er í eðli sínu og í grundvallaratriðum gerólíkt því heilbrigðiskerfi sem við höfum kosið að byggja upp hér eða annars staðar á Norðurlöndunum.

Ég myndi segja að það væri þá væntanlega talsvert léleg frammistaða hins opinbera í samningum við þessa sömu nýrnalækna. Við sjáum bara, þegar við horfum á þann árangur sem náðst hefur á fjölmörgum sviðum innan heilbrigðiskerfisins hér og annars staðar á Norðurlöndunum, að það er einmitt hægt að láta fara saman þessa opinberu heilbrigðisstefnu eða tryggingu, þ.e. að allir njóti jafns aðgengis, en hægt sé að nýta afmarkaða þætti heilbrigðiskerfisins, kosti samkeppninnar, kosti einkaframtaksins eða einkarekstrarins. Ríkið er þá með innkaupum sínum og eftirliti að tryggja að gæðin séu í samræmi við þær kröfur sem settar eru fram, t.d. af aðilum eins og landlækni, að þetta sé raunverulega hagkvæm þjónusta að kaupa fyrir ríkið og að sjúklingurinn sé í forgrunni, njóti tímanlegrar og góðrar þjónustu og með lágmarkskostnaðarþátttöku af sinni hálfu eins og við erum alltaf að tala um hér.

Það er fyrst og fremst þetta sem ég er að tala um að við eigum í auknum mæli að gera. Þegar við tölum um brotakennt heilbrigðiskerfi, sem er alveg rétt, þá held ég að stærsti veikleikinn sé einmitt stjórnin á því, það er stýringin á því hvar við kaupum þjónustuna og hvernig við kaupum þjónustuna. Það er kostnaðarvitund okkar á einstökum þáttum (Forseti hringir.) kerfisins sem er afskaplega veik og brotakennd. Það er hana sem þarf að efla númer (Forseti hringir.) eitt, tvö og þrjú til þess að við getum þá beitt kostum fjölbreytts rekstrarfyrirkomulags.