sjúkratryggingar.
Virðulegi forseti. Ég sagði ekkert að það myndi skorta hvata. Ég sagði að ég hefði áhyggjur af því að það gæti skort hvata ef einstaklingar hefðu ekki þann möguleika að fara í eigin rekstur og mögulega greiða sér arð.
Til þess að taka af allan vafa er ég á móti þessu frumvarpi. Höfum það alveg á hreinu. En ég skil hins vegar að sumu leyti þær breytingar sem lagðar eru til í 2. gr. varðandi það að menn reikni sér arð og arðgreiðslur inn í kostnaðarmatið. Ég er ekki að segja að það sé endilega óeðlilegt. Ég kann þetta ekki, þekki ekki hvernig þetta er gert. Ef það er þannig að menn eru með eitthvert utanumhald sem þeir þurfa að standa straum af og nota til þess þessar arðgreiðslur, þá getur vel verið að það sé eðlilegt að þær séu reiknaðar inn í þetta. En ég horfi á þetta þannig að ef það er aðili sem getur veitt góða þjónustu úti í bæ, betri þjónustu en gert er á ríkisstofnunum, þá á ekki að koma í veg fyrir það. Svo lengi sem viðkomandi uppfyllir kröfur og skilyrði og er innan þess ramma sem honum er veittur er það eðlilegt.
En það á ekki heldur að vera neins staðar sjálftaka á kostnað ríkisins, hvort sem það er í menntakerfi, heilbrigðiskerfi eða guð má vita hvað. Við verðum að búa þannig um hnúta í samningum að allt sé skýrt, allt uppi á borðinu og ljóst að hverju menn ganga og hvað ríkið fær fyrir sinn hlut. En ég held að það kerfi sem við erum með í dag sé að mörgu leyti ágætt. Það þarf kannski að skýra hlutina með einhverjum hætti, það þarf augljóslega að gera nýja samninga, en ég er ekki í þeim hópi sem vill að það verði bannað að vera með einkarekstur við hlið ríkisrekstursins, alls ekki. Ég vil að hvort tveggja sé til staðar. En ég vil líka tryggja að það séu nægir peningar í ríkisrekstrinum. Það er mjög mikilvægt. Ég held að það sem við eigum að gera í dag sé dálítið að taka stokkinn, eins og við höfum sagt sum okkar, (Forseti hringir.) taka allan þennan stóra stokk sem er peningar í heilbrigðiskerfinu og athuga hvort við séum að fara nógu vel með hann.