149. löggjafarþing — 8. fundur,  20. sept. 2018.

sjúkratryggingar.

11. mál
[15:23]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Undanfarna áratugi hefur heilbrigðisþjónusta á Íslandi grundvallast á þremur stoðum, þremur meginstoðum. Það er í fyrsta lagi sú þjónusta sem ríkið rekur, í öðru lagi þjónusta sem er rekin af frjálsum félagasamtökum og í þriðja lagi þjónusta sem er rekin af einkaaðilum með samningi frá ríkinu.

Öllu þessu þrennu grautaði framsögumaður þessa máls saman í framsöguræðu sinni þegar hann setti í sömu setningu SÁÁ, sem eru frjáls félagasamtök, Hrafnistu sem hefur sett sér hlutafélag utan um hvert heimili sem rekið er, og lækna sem annaðhvort í hóp eða einir saman hafa gert samninga við ríkið og sinna þjónustu samkvæmt því.

Það er náttúrulega algjör firra að blanda þessu svona saman en hitt er annað mál að það kemur í ljós að Vinstri græn, heilbrigðisráðherra Vinstri grænna, hefur sett þessa tvo anga, þ.e. frjáls félagasamtök og þá sem reka þjónustu fyrir eigin reikning en í samningi við ríkið, undir sama hatt. Þess vegna hefur heilbrigðisráðherra hundelt SÁÁ, Hugarafl, Karitas og fleiri samtök, eins og hér sé um stórgróðafyrirtæki að ræða. Við vitum öll um óbeit Vinstri grænna á arði annarra og sú óbeit gengur svo langt, hæstv. forseti, að nú um stundir finnst heilbrigðisráðherra Vinstri grænna eðlilegra að senda fólk utan til lækninga í liðskiptaaðgerð sem kostar þrefalt á við það sem hægt er að kaupa þessa þjónustu á hér heima vegna þess að hætta er á að innlendi aðilinn reikni sér arð, hugsanlega. Það getur vel verið að sá sænski geri það líka en það fer í hans vasa og við erum ekki að skipta okkur af hvað útlendingar græða, við erum bara á móti því að íslenskir aðilar sem stunda þess starfsemi græði, er það ekki hv. þingmaður?

Þetta er algjör firra. Það er kannski þetta sem stendur upp úr í þessu frumvarpi. Ég hef hins vegar áhyggjur af öðru, hæstv. forseti. Ég hef áhyggjur af því að frumvarpið fari í bága við jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Ég skal skýra af hverju. Það segir í 2. gr. frumvarpsins: „Veitendum er óheimilt að reikna arð og arðgreiðslur inn í kostnaðarmat.“ Nú skulum við taka tilbúið dæmi:

Maður nokkur hrasar hér fyrir utan Alþingishúsið og ber fyrir sig aðra höndina. Hann stendur upp og hristir sig og heldur áfram en um kvöldið tekur hann eftir því að höndin er orðin blá og bólgin. Hann er svo heppinn að hann kemst að hjá heilsugæslulækni morguninn eftir, meira að segja einkarekinni heilsugæslu. Heilsugæslulæknirinn ávísar honum verkjalyfjum og sendir hann í röntgen. Þessi ágæti maður fær meðulin sín í apótekinu, kyngir einhverju af pillunum, það dugar ekki og hann fer í röntgen, kemur í ljós að hann er úlnliðsbrotinn og er sendur upp á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann fær gifs og „treatment“. Afsakið, hæstv. forseti, ég veit að þessi forseti er ekki jafn skilningsríkur á notkun enskrar tungu eins og sá sem sat hér fyrr. Ég ætla því að taka þetta til baka og segja að hann hafi fengið viðeigandi þjónustu. Hann fer í burt læknaður.

Nú ætla ég að fara yfir þennan feril. Ríkið greiðir náttúrulega heilsugæslulækninum af því að hann er annaðhvort á samningi hjá einkarekinni heilsugæslu og/eða vinnur hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Apótekarinn selur vissulega lyf sem ríkið tekur stóran kostnaðarþátt í, nota bene, ríkið hefur ekki spurt apótekarann hvort hann ætli að hirða arð út úr starfsemi sinni. Hann fer til röntgenlæknis sem rekur eigin stofu. Sá þrjótur hins vegar, samkvæmt þessu frumvarpi, á að gangast undir það að það sé algjörlega gengið úr skugga um að hann ætli ekki að reikna sér arð út úr sinni starfsemi. Hvað bíður uppi á Landspítalanum í Fossvogi? Jú, þar bíður meðferð sem samanstendur af gifsi og fleiru. Sá sem seldi gifsið er væntanlega í rammasamningi ríkisins og hefur ekki verið spurður hvort hann ætli að reikna sér arð eða ekki. Einhverjir heftiplástrar líka, sprautur og nálar og dót. Ekki spurt að því.

Hvers vegna á að taka eina stétt út úr, hv. þingmaður, og banna þeim í þeirri stétt að reikna sér arð inn í það sem þeir eru að gera? Er þetta ekki brot á jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og/eða brot á rétti manna til starfsemi samkvæmt stjórnarskrá? Vernd sjálfstæðrar atvinnustarfsemi?

Þetta er það sem ég hef áhyggjur af. Mér finnst þetta mál mjög tilgangslaust, ég skal viðurkenna það. Ég er búinn að leita að tilgangi þessa máls svona í huga mér meðan ég hlustaði af athygli á skoðanaskipti stjórnarliða um málið og það er náttúrulega himinn og haf á milli Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna í þessu máli. Þriðja hjólið undir vagninum, hjálpardekkið hefur ekki tekið til máls, þannig að við vitum ekki til afstöðu þess í málinu. En það er alveg ljóst að það er himinn og haf á milli hinna tveggja og þá er spurningin: Hver er tilgangurinn?

Augljóslega er þetta frumvarp lagt fram með blessun heilbrigðisráðherra. Þá er spurningin um það að þegar ráðherrar treysta sér ekki til að leggja fram frumvörp sem eru til þess fallin að ýfa fjaðrir á samstarfsaðilunum, þá beita þeir fyrir sig fótgönguliðum. Það eru sem sagt viljugir fótgönguliðar VG sem hafa tekið að sér að bera þetta mál hér upp. Annaðhvort til þess að heilbrigðisráðherra fengi þröskuld til að standa á í komandi samningaviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn um það hvernig á að haga þessum málum eða það sem mér þykir líklegra: Ég tel að þetta frumvarp sé sett fram til þess að friða frústreraða Vinstri græna sem sitja heima unnvörpum og bölva hástöfum yfir því að Vinstri græn skuli hafa leitt íhaldið til valda á Íslandi.

Í raun og veru hefði þetta frumvarp átt ágætlega heima í upphafsræðu á flokksráðsfundi VG þannig að menn gætu sagt: Þetta eru nú áherslur VG í heilbrigðismálum, við ætlum sko ekki að láta einhverja lækna, sem eru búnir að eyða 16 árum af ævi sinni í eitthvert nám í útlöndum og koma hérna heim, fara að græða. Það er alveg ómögulegt mál. Svona stöndum við nú í ístaðinu og þó að við séum búin að leiða íhaldið til valda með einn nytsaman sakleysingja með okkur, þá skiptir það engu máli. Við erum samt svona harðir.

Hæstv. forseta. Þetta tel ég vera frumástæðuna fyrir því að þetta frumvarp kemur fram. Að því sögðu þá er þetta líka, og ég hef komið inn á þær áhyggjur mínar að frumvarpið standist ekki jafnræðisreglu stjórnsýslulaga, töluvert alvarlegt mál. Ég held líka að það sé í sjálfu sér töluvert alvarlegt mál af því að hv. þingmaður sem er framsögumaður þessa máls hefur margtekið fram að önnur þjónusta sem ríkið kaupir sé ekki jafnsett þjónustu í heilbrigðisgeiranum. Allt í lagi, ég skal kaupa það, en þá er spurningin: Jafnsett af því að seljandinn er í yfirburðarstöðu?

Málið er að ef að einhvern mann vantar magnyl og íbúfen eða eitthvað þaðan af sterkara af því að hann er með verki þá er hann í nákvæmlega jafn veikri stöðu gagnvart apótekaranum eins og hann er gagnvart einhverjum lækni sem er á samningi við ríkið og er hætta á að taki arð út úr starfsemi sinni, nákvæmlega sömu stöðu, en það er ekki gerð sama krafa til apótekarans. Það virðist reyndar ekki vera gerð nein einasta krafa til lyfjainnflytjenda yfir höfuð eins og við heyrum nú undanfarið. Það eru ekki til nauðsynleg krabbameinslyf. Það eru ekki til nauðsynleg gigtarlyf og hafa ekki verið til vikum eða mánuðum saman. Maður hlýtur að spyrja: Hvar er eftirlit með þessu? Í miðjunni á svona atburðum þá velja einhverjir fótgönguliðar VG sér það hlutskipti að koma inn með frumvarp og skjóta úr fallbyssum á flugur í staðinn fyrir að beita sér af afli í þeim geirum sem virkilega knýr á, meðan að það er verið að rústa SÁÁ, Karitas, Hugarafli og Krabbameinsfélaginu. Menn kippa sér ekki upp við það en að einhverjir sérfræðilæknar úti í bæ geti hugsanlega reiknað sér arð af starfsemi sinni, það er voði. Það eru um 300 sérfræðilæknar sem væntanlega detta af samningi um áramótin. Ef svo heldur áfram sem horfir þá skapast einmitt sú staða sem nokkrir ræðumenn hafa bent á í þessari umræðu og ég tek undir. Þá skapast virkileg hætta á því að hér verði til tvöfalt kerfi. Þá skapast hún í boði Vinstri grænna. Þetta er líka umhugsunarefni af því að ég minntist hér á liðskiptaaðgerðina áðan sem Vinstri grænir eru til í að borga þrefalt fyrir, talandi um ríkið sem ábyrgan kaupanda sjúkraþjónustu. Það fer ekki saman hljóð og mynd hér, hæstv. forseti, alls ekki.

Biðlisti í liðskiptaaðgerðir styttist um held ég 150 manns í fyrra. Klíníkin Ármúla gerði 150 aðgerðir í fyrra. Af hverju var ekki settur í gang kraftur í það að fara meira með liðskiptaaðgerðir upp á Akranes, fara með þær suður á Suðurnes? Mér er kunnugt um það sem hv. þingmaður hefur talað um áður að þar vanti eitthvað upp á skurðstofuna til þess að hægt sé að framkvæma aðgerðir. Það er hins vegar búið að leigja þessa skurðstofu út og gerðar aðgerðir þar daginn út og inn og þá spyr maður: Er verið að leggja þá sjúklinga í einhverja hættu? Það held ég ekki. Þetta er fyrst og fremst óstjórn.

Menn hafa ekki lagt áherslu á það að framkvæma þessar aðgerðir með hagkvæmum hætti og láta háskólasjúkrahúsinu eftir það sem það er best í, þ.e. að berjast við illvíga sjúkdóma, erfiða og flókna, taka hjartaaðgerðirnar og krabbameinin, en liðskiptaaðgerðirnar geta verið einhvers staðar annars staðar. Ég sagði hér áðan að það væri u.þ.b. þrefaldur kostnaður sem menn væru tilbúnir að borga í útlöndum sem þeir ekki vilja borga hér af því að þeir hafa óbeit á eignarhaldinu, á þeim sem framkvæmir aðgerðina, en það liggur reyndar ekki fyrir hvað liðskiptaaðgerð, t.d. mjaðmaskiptaaðgerð, kostar á Landspítalanum, það liggur ekki fyrir enn þá. Það mun hugsanlega liggja fyrir þegar búið er að leggja fram greinargóða fyrirspurn um afköst Landspítalans síðustu ár og árangur hans í rekstri. Slíkar fyrirspurnir munu koma fram. Þá verðum við einhverju nær um það hvort einkarekin fyrirtæki eins og Klíníkin t.d., sem er að bjóðast til þess að fara í mjaðmaaðgerðir, er slík okurstarfsemi sem menn vilja vera að láta. En þó ekki meiri en svo að þeir eru tilbúnir í að borga þrefalt í útlöndum, nota bene, í gjaldeyri sem við ættum nú að vera að spara. Við erum að koma niður úr hagsveiflunni og þurfum að fara að huga að því að rýra ekki viðskiptajöfnuð landsins.

Það kom líka fram um daginn hversu margir það eru, það eru nokkur hundruð manns, sem núna hafa rétt til þess samkvæmt Evróputilskipun að fara til Svíþjóðar í liðskiptaaðgerð og ég held að það séu um 100 af hvoru, hnjáliðir og mjaðmaliðir. Ég held að það sé um það bil sá hluti sjúklinga sem hefur núna rétt á því að fara út. Þetta kostar 600 milljónir og hvar ætla menn að grípa þær? Hér væri hægt að gera þetta fyrir 200. Á þessu hafa menn ekki áhuga en segja samt að ríkið eigi að vera ábyrgur kaupandi heilbrigðisþjónustu.

Hæstv. forseti. Hér fer ekki saman hljóð og mynd. Þetta er ekki burðugur málflutningur. Þess vegna segi ég: Þetta frumvarp er fyrst og fremst sett fram til að friða óánægða Vinstri græna sem sitja heima og bölva í hljóði og upphátt yfir því að Vinstri græn hafi leitt íhaldið til valda á Íslandi og svona til að hnykla aðeins vöðvana, þ.e. fótgönguliðarnir hnykla vöðvana fyrir ráðherrann sem hefur ekki tök á því. Það er ástæða þess að þetta mál er komið hér inn.

Það er hins vegar gott, eins og aðrir ræðumenn hafa sagt hér á undan, að þetta mál er borið hér inn að því leytinu til að þá getum við einmitt tekið þessa umræðu og komið upp um þennan tvískinnung sem kemur fram í þessu máli öllu og málatilbúnaði Vinstri grænna í því yfir höfuð.