149. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2018.

um fundarstjórn.

[15:04]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Herra forseti. Ég verð að leyfa mér að segja eftirfarandi: Ég varð óneitanlega mjög undrandi þegar ég heyrði í útvarpsfréttum að hæstv. samgönguráðherra væri í þann veginn að kynna samgönguáætlun á Umferðarmiðstöðinni, sem út af fyrir sig er vel valinn staður hjá ráðherranum. Þetta gerir ráðherrann án þess að Alþingi hafi áður verið kynnt samgönguáætlun.

Svo berast þær lausafregnir að flestallir þingmenn stjórnarflokkanna hafi fengið afrit eða einhvers konar kynningu eða séu sér vel vitandi um efni og inntak þessarar ágætu samgönguáætlunar meðan hv. þingmenn stjórnarandstöðu hafa ekki séð neitt. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu þýðingarmikið mál er hér á ferð. Mál sem þingmenn almennt láta mjög til sín taka.

Ég leyfi mér að segja að ég tel að þingmönnum sé ekki sýnd mikil virðing með þessari framgöngu. Ég leyfi mér líka að segja að ég hefði ekki átt von á því frá hæstv. samgönguráðherra að hann sýndi Alþingi óvirðingu af því tagi sem ég tel felast í þessari gjörð, að kynna þessa áætlun (Forseti hringir.) í samgöngumálum utan veggja Alþingis áður en hann er búinn að kynna hana hér.