um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég get tekið undir allt eða flest af því sem hér hefur verið sagt. Nú hefur hæstv. ráðherra komið upp og sagt að þetta sé óheppilegt. Við því er þá hægt að bregðast. Staðreyndin er nefnilega sú að við erum búin að vera að fá símtöl frá fréttamiðlum þar sem við erum beðin um svör eða að gefa álit á hinu og þessu sem á að standa í þessu en við þurfum að hafna því og benda á að við vitum það ekki. Því til viðbótar hafa verið haldnir aðalfundir landshlutasamtaka þar sem við hittum sveitarstjórnarfólk og erum krafin um svör. Það er í hæsta máta óheppilegt þegar sumir fulltrúarnir geta mætt á þessa fundi með svör og aðrir ekki. Mér finnst að ráðherra sem nú hefur sagt að þetta sé óheppilegt eigi einfaldlega að bregðast þannig við að hann birti þetta bara og sendi okkur í dag.