biðtími hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
Herra forseti. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands er miðstöð þekkingar í heyrnar- og talmeinum á Íslandi. Stöðin veitir mikilvæga þjónustu á landsvísu og er hlutverk hennar að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með talmein.
Hlutverk stofnunarinnar eru skilgreind í lögum. Helstu starfsþættirnir eru: Að framkvæma heyrnarmælingar, greining og meðferð á heyrnar- og talmeinum, veita faglega ráðgjöf og annast þjálfun og endurhæfingu heyrnarlausra, heyrnarskertra og þeirra sem eru með heyrnar- og talmein, vinna að forvörnum á starfssviði sínu og útvega hjálpartæki. Auk þess veitir stofnunin fræðslu og þjálfun í notkun hjálpartækja, sér um viðhald þeirra og uppsetningu. Stöðin stundar einnig rannsóknir og sinnir fræðslu á sínu starfssviði.
Mikilvægi stöðvarinnar hefur síst minnkað á undanförnum árum. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er hlutfall heyrnarskertra um 16%. Um það bil 5% af Íslendingum þurfa á heyrnartækjum að halda og eiga rúmlega 9.000 einstaklingar heyrnartæki. Um 70% þeirra eru 67 ára og eldri og 7% eru börn undir 18 ára aldri. Hlutfall aldraðra eykst jafnt og þétt en um 12% aldraðra eru heyrnarskertir. Sá hópur sem þarf á þjónustu Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar að halda fer því ört stækkandi. Árlega eru rúmlega 12.000 heimsóknir á stöðina en hún fær á næstu fjárlögum 416 millj. kr.
Hins vegar er það svo, hæstv. heilbrigðisráðherra, að það er langur biðtími eftir þjónustu stofnunarinnar. Ég þekki dæmi þess að einstaklingur hafi beðið í sjö mánuði eftir því að komast í skoðun og fá nýtt heyrnartæki. Það er afar bagalegt fyrir þennan stóra hóp að þjónustan sé með þessum hætti.
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Hvað veldur þessum langa biðtíma? Hvað sér ráðherra fyrir sér í þeim efnum til að reyna að bæta þetta?