149. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2018.

rafrettur og rafrettuvökvi.

[16:01]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég velti fyrir mér, ég er bara svona forvitin, hvers vegna þessi leið er farin. Miðað við tóbaksvörur er ekkert tilkynningargjald sem fylgir tilkynningu á vörum. Það er náttúrlega skattur sem leggst ofan á sem er frekar hár. En hvers vegna er þessi leið farin? Ég spyr hvort ráðherra muni hafa það að leiðarljósi í þessari vinnu að tryggja að fjölbreytni sé til staðar, að þetta muni ekki hafa þau áhrif að ef heildsali er kominn verði miklu minna úrval af bragðefnum í boði. Er það yfir höfuð eitthvað sem ráðherra er að huga að eða hefur áhyggjur af? Kannski væri ágætt að heyra hvort ráðherra telji rafrettur yfir höfuð vera öflugt skaðaminnkunarúrræði sem beri að nálgast sem svo og þar af leiðandi að tryggja að þær séu aðgengilegar og fjölbreytt bragðefni séu til þannig að við séum að byggja lög og reglur á þeim vísindum sem eru til staðar.