landbúnaðarafurðir.
Herra forseti. Það stefnir í mikið tal um fisk þegar við förum bráðum að tala um veiðigjöldin. En sem byggðaþingmaður ætla ég að ræða aðeins um landbúnað og aðeins einn kima hans sem snýst um nýsköpun, þ.e. um matvæli.
Í nýjasta Bændablaðinu birtist grein um svokölluð örsláturhús. Þar kveður svolítið við annan tón en við þekkjum vegna þess að þarna er mjög jákvæð umsögn, þessi grein sviðsstjóra Matís. Um er að ræða hráefnisöflun til nýsköpunar beint úr nærumhverfinu, fyrst og fremst kjöt. Það er í sjálfu sér verið að liðka fyrir því að nýsköpun á þessu sviði verði öflug. Það er líka önnur og sérstök hlið á þessu máli sem er matarsóun, því að örsláturhús gætu opnað fyrir svokallaða matvælamarkaði smáframleiðenda í stærstu og meðalstórum bæjum landsins. Sá verslunarmáti, þ.e. einhvers konar markaðir, útimarkaðir eða innimarkaðir, getur að hluta til komið í stað verslunar með forpakkaðar vörur í stórmörkuðum en hún veldur bæði aukinni umbúðamengun og því að miklu af mat er hent. Þetta er þekkt á öllu meginlandi Evrópu og þetta er frekar umhverfisvænt vegna nálægðar við kaupendur og vegna miklu minni sóunar. Það er verið að selja þar eftir vigt.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé sammála mér um að að nokkru leyti ætti að vinda ofan af linnulítilli samþjöppun í slátrun og vinnslu, sölu landbúnaðarafurða o.fl. og liðka til með breytingum á lögum og reglugerðum.