149. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2018.

landbúnaðarafurðir.

[16:15]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Við sjáum þetta gerast að nokkru leyti á markaði með grænmeti þar sem ekki þarf svo sem að slátra neinu. Og við sjáum þetta á markaði með alls konar jurtir sem menn eru að tína úti í náttúrunni í sultur og smyrsl og hvaðeina. Við sjáum þetta líka í þessu merkilega átaki sem hefur verið í ferðaþjónustu, matur heima í héraði, þar sem bændur á tilteknu svæði hafa lagt mikið upp úr því að kynna sín eigin hráefni.

Það er mikið í húfi að straumlínulaga verslun með matvæli í landinu vegna þessarar sóunar og þess hvernig verslun er alltaf að færast fjær og fjær fólki. Það er engin þörf á að slaka á heilbrigðiskröfum þegar kemur að örsláturhúsum. Síðan má meta það að nýsköpun er lykilatriði, sérstaklega fyrir sauðfjárbændur sem munu kannski ekki geta lifað af búum sínum nema sumir þeirra. Nú er bara að snúa öllu saman í gang og ég hvet ráðherra til að vera forystusauður í þessu.